
Haddi með nikkuna.
Hafsteins Sigurðssonar minnst í Stykkishólmi um helgina
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "„Það er ómögulegt að sjá fyrir sér sögu Tónlistarskóla Stykkishólms án þess að nafn Hafsteins Sigurðssonar verði þar fyrirferðarmikið.“ Svona fórust Jóhönnu Guðmundsdóttur skólastjóra Tónlistarskólans orð í upphafi minningargreinar um Hafstein, sem lést árið 2012 eftir harða baráttu við krabbamein. Um næstu helgi verður Landsmót harmonikuunnenda haldið í Stykkishólmi og er það helgað minningu þessa mikilhæfa tónlistarmanns.\r\n\r\n<strong>Haddi</strong>\r\n\r\nHafsteinn var fæddur árið 1945 í Stykkishólmi og sleit þar barnsskónum elstur systkina sinna. Hann var kallaður Haddi af þeim sem til hans þekktu. Á sumrin dvaldi hann mikið hjá móðurfólki sínu á Hellnafelli við Grundarfjörð, svo segja má að Snæfellsnesið hafi verið hans heimasvæði. Hann fór snemma að læra á hljóðfæri og mikið var sungið og spilað á hans æskuheimili. Og þegar fjölskyldan hittist var nikkan ávallt með í för, og þá var spilað, sungið og dansað. Hann lærði trésmíðar en tónlistin varð í senn aðaláhugamálið og lífsviðurværið fyrir utan sjómennskuna, sem hann stundaði með störfum sínum við Tónlistarskólann í Hólminum. Árið 1973 hóf hann sambúð með Sigrúnu Ársælsdóttur (Rúnu) og áttu þau eina dóttur saman, en áður hafði hann eignast son. Haddi elskaði fjölskyldu sína og var umhugað um þau öll, ekki bara systkini sín heldur líka tengdasystkini og segja má að hann hafi eignast sex systkini í viðbót með sambúð sinni með Rúnu. Hann var góður vinur barna sinna og tengdardóttur og barnabörnin skipuðu stóran sess í hjarta hans.\r\n\r\n<strong>Stórt hlutverk í menningarlífinu í Hólminum</strong>\r\n\r\nHafsteinn lék í og stjórnaði mörgum danshljómsveitum og átti stóran þátt í menningarlífinu í Stykkishólmi. Hann útsetti, spilaði og stjórnaði tónlistaratriðum þar í fjöldamörg ár. Á áramótunum stillti hann sér upp á horni Silfurgötu og Lágholts, tilbúinn með nikkuna og vini sína Benna og Sigga sér við hlið. Á slaginu tólf hljómuðu svo þrjár nikkur í takt og nýja árið gekk í garð.\r\n\r\nHaddi vann mikið með þorrablótsnefndum, setti saman heilu söngleikina og orti gamanvísur. Það lá vel fyrir honum að gera vísur og hann var glöggur á það skondna og skemmtilega við bæjarlífið í Stykkishólmi.\r\n\r\n<strong>Ummæli félaga</strong>\r\n\r\nHaddi var þekktur meðal harmonikuunnenda fyrir afburða hljóðfæraleik og mikla ljúfmennsku. Ein úr þeim hópi er Elísabet H. Einarsdóttir, fráfarandi formaður Félags harmonikuunnenda í Reykjavík (FHUR). Henni er minnisstæð ferð sem hún fór í Stykkishólm með skólasystrum sínum. Gist var á Hótel Stykkishólmi og við hátíðarkvöldverðinn lék Hafsteinn dinnermúsik og spilaði svo fyrir dansi. „En svo fengum við partýherbergi niðri og Hafsteinn kom með okkur. Við sungum þar einhver ósköp. Um fjögurleytið fór hann heim og þá vildu dömurnar smella á hann kossi fyrir öll skemmtilegheitin en Hafsteinn sagði: „Þið megið taka í höndina á mér, en ég vil ekki að konan mín finni ilmvatnsilm af öðrum konum.“ Ég hitti hann oft eftir þetta og minnti hann og konuna hans á þetta. Merkilegur maður og frábær harmonikuleikari,“ segir Elísabet.\r\n\r\nFriðjón Hallgrímsson er núverandi formaður FHUR. Í minningarorðum um Hafstein í Harmonikublaðinu á sínum tíma segir hann: „Mér var illa brugðið þegar ég sá lát Hafsteins Sigurðssonar í Stykkishólmi auglýst. Að vera á sextugasta og sjöunda aldursári þykir í dag ekki tiltakanlega hár aldur, framundan ættu að vera skemmtileg ár þar sem tími gæfist til að sinna áhugamálum en brauðstritið að baki. Haddi var ákaflega vandaður tónlistamaður og án efa einn besti harmonikuleikari Íslendinga.“\r\n\r\n<strong>Kennarinn Haddi</strong>\r\n\r\nHaddi lék á ýmis hljóðfæri en hélt langmest upp á harmonikkuna. Hann átti auðvelt með að miðla þekkingu sinni til nemenda og naut sín sem kennari og í spjalli um tónlistina. Fyrsti nemandi hans mun hafa verið Sigþór Hallfreðsson sem hóf nám hjá honum um 1974. Í dag hugsar Sigþór hlýlega til síns gamla kennara þótt hann hafi ekki numið hjá honum í langan tíma. Síðan námi hans lauk segir hann aðra nemendur hafa náð lengra í spileríinu en hann, en það skrifist á nemandann en ekki kennarann.\r\n\r\nJakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri í Stykkishólmi var einn nemenda Hafsteins og segir hann hafa búið að náttúrulegum tónlistarhæfileikum. Hann hafi verið algjört náttúrutalent og gæddur einstakri tónvisku. Svo skemmtilega vill til að faðir Jakobs, Jakob Ingi Jakobsson, lærði einnig hjá Hadda. Hann var næsti nemandi á eftir Sigþóri og sá fyrsti sem lærði hjá honum í lengri tíma, Lærðu þeir feðgar báðir og spiluðu á sama hljóðfærið sem hafði áður verið í eigu Björgvins K. Þorvarðarsonar móðurafa Jakobs yngri. Þess má geta að Björgvin var einnig móðurbróðir Sigþórs. Svo segja má að Björgvin og nikkann hans hafi lagt grunninn að ýmsu góðu í tónlistarlífinu í Hólminum.\r\n\r\nÞað verður Jakob Ingi Jakobsson sem mun opna Landsmótið um næstu helgi og spila fyrsta lagið þar í minningu lærimeistara síns, Hafsteins Sigurðssonar tónlistarmanns. Fjölskylda Hadda hefur aðstoðað blaðamann við ofangreind skrif og vill koma þökkum á framfæri fyrir þann heiður sem minningu hans verður sýnd á þessu fjórtánda Landsmóti harmonikuunnenda.\r\n\r\n<em>Einnig má benda á að í Skessuhorni sem kom út í dag minnist Jakob Ingi Jakobsson áranna með Hadda og harmonikkunni.</em>",
"innerBlocks": []
}