
Hópurinn sem tók þátt í hlaupinu. Ljósm. þa
Nýtt brautarmet slegið í kvennaflokki Snæfellsjökulhlaupsins
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Snæfellsjökulshlaupið fór fram á laugardaginn og mættu 213 keppendur til leiks. Lagt var upp frá Arnarstapa, hlaupið yfir Jökulháls og endað í Ólafsvík. Andrea Kolbeinsdóttir kom fyrst í mark í kvennaflokki á nýju brautarmeti. Hún hljóp á tímanum 1:42,47. Í karlaflokki fór hinn tvítugi Bandaríkjamaður Cole Nash með sigur af hólmi en hann hljóp á 1:35,23 klukkutíma. Jörundur Frímann Jónsson kom tæpum tveimur mínútum á eftir honum í mark og Snorri Björnsson varð þriðji.\r\n\r\nHlaupaleiðin er um 22 km. Langstærsti hluti hlaupsins er um malarveg. Fyrstu átta km þarf að hlaupa upp í móti í ca. 700 metra hæð. Síðan tekur hlaupaleiðin smám saman að lækka þar til komið er til Ólafsvíkur. Hlauparar eiga von á að þurfa að kljást við snjó og aur frá fyrsta kílómetra og upp í þann sjöunda á leiðinni, en erfiðleikastig hlaupsins fer eftir því hversu veturinn var snjóþungur og snjóa leysir snemma. Hlauparar fá hins vegar á leiðinni að upplifa einstaka náttúrufegurð og að ógleymdri þeirri orku sem Snæfellsjökull býr yfir. Fjórar drykkjarstöðvar verða á leiðinni á ca. 5 km millibili sem Björgunarsveitin Lífsbjörg sá um þær.\r\n\r\nAð hlaupi loknu fór fram verðlauna afhendingin í Sjómannagarðinum. Þar fengu efstu keppendur í flokkunum sín verðlaun.",
"innerBlocks": []
}