
Slökkvilið Stykkishólms er hér búið að slökkva eldinn. Ljósm. sá
Eldur kviknaði í gámi í Stykkishólmi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Slökkvilið Stykkishólms var ræst út í gær þegar eldur kom upp í gámi á svæði Íslenska gámafélagsins. Einar Þór Strand slökkviliðsstjóri segir í samtali við Skessuhorn að eldurinn hafi komið upp í pressugámi og telur hann að eitthvað hafa farið í gáminn sem ekki þoldi pressun, en gámurinn var merktur fyrir almennt sorp. Má því rekja eldsupptökin til rangrar flokkunar. Einar segir að gengið hafi fljótt og vel að slökkva eldinn og ekki hafi orðið mikill skaði, en vissulega hafi þó málning sviðnað af gámnum.",
"innerBlocks": []
}