
Ekki þurfa öll störf að vera staðsett í Reykjavík.
Opinber sérfræðistörf án staðsetningar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samband íslenskra sveitarfélaga hyggst ráða sérfræðing í málefnum barna og mun hann starfa með öðrum sérfræðingum sambandsins að verkefnum á sviði fræðslumála og félagsþjónustu. Er starfið auglýst án staðsetningar, föst starfsaðstaða geti verið utan höfuðborgarsvæðisins, að því gefnu að mögulegt verði að tryggja fullnægjandi starfsaðstöðu nærri heimili umsækjanda. Einnig er því haldið opnu að starfsaðastaðan geti verið á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í Reykjavík. Um er að ræða fullt starf og að æskilegt sé að umsækjandi hefji störf í október. Í starfslýsingu kemur fram að helstu verkefni sérfræðingsins tengist samþættingu farsældarþjónustu í þágu barna, sem m.a. snýr að leik- og grunnskólastarfi, frístundaþjónustu og annarri þjónustu við börn.\r\n\r\nHáskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur einnig auglýst nokkur störf sérfræðinga þar sem tekið er fram að ráðuneytið sé jákvætt fyrir störfum án staðsetningar. Ennfremur auglýsir Vegagerðin starf sérfræðings á svipuðum nótum. Í þessu felast tækifæri fyrir landsbyggðina alla, Vesturland þar með talið.",
"innerBlocks": []
}