Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims í pontu á fundinum í gær. Ljósm. gj.

Íbúafundur á Akranesi um framtíðarsýn á Breiðinni og Running Tide

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær var haldinn íbúafundur þar sem framtíðarsýn fyrir Breiðina og fyrirtækið Running Tide var kynnt, en það er að hefja starfsemi á Akranesi og hefur þegar auglýst eftir starfsfólki. Fundurinn var haldinn í Bíóhöllinni og var ágætlega sóttur. Framsögu höfðu auk Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra; Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims, Marty Odin stofnandi Running Tide og Kristinn Árni L. Hróbjartsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins á Íslandi.\r\n\r\nEins og áður hefur komið fram í Skessuhorni var það arkitektastofan Arkþing Nordic ehf sem fékk fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni um framtíðarsýn fyrir ellefu hektara landsvæði á Breiðinni og verður nú unnið áfram með þá tillögu sem nefnist Lifandi samfélag við sjó. Þar er gert ráð fyrir blöndu af íbúðabyggð og atvinnufyrirtækjum og heilsuhóteli auk fjölbreyttra útivistarmöguleika og góðu aðgengi almennings að sjónum.\r\n\r\nÍ máli Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra á fundinum kom fram að nú tæki frekari undirbúningur við. Gera yrði ráð fyrir að það tæki nokkurn tíma og að deiliskipulagsvinnan ein og sér tæki að lágmarki átján mánuði. Sagði hann samráð við íbúa og fleiri aðila á þeim tíma stóran þátt í ferlinu. Svæðið er nú skilgreint sem hafnar- og iðnaðarsvæði svo breyta þarf bæði aðal- og deiliskipulagi og verða tillögur Arkþing Nordic leiðarljós í þeirri vinnu sem framundan er ásamt samráði við íbúa.\r\n\r\n<strong>Binda kolefni</strong>\r\n\r\nFjallað var ítarlega um fyrirætlanir Running Tide í Skessuhorni 15. júní síðastliðinn, en fyrirtækið þróar og nýtir tækni og aðferðir sem örva náttúruleg ferli sjávarins í að grípa, binda, og geyma kolefni til langs tíma. Hafa forsvarsmenn fyrirtækisins lýst yfir vilja sínum til að hluti starfseminnar á alþjóðavísu fari fram á Akranesi og telja að Ísland hafi alla burði til að verða miðstöð kolefnisbindingar í heiminum. Í máli Marty Odin kom fram að loftslagsvandinn væri stærsta áskorun heimsins í dag. Slæm áhrif hlýnandi verðurfars væru þegar orðin áberandi á þeim slóðum sem hann er frá, í Maine í Bandaríkjunum. Fjölskylda hans hefði lengi haft atvinnu af fiskveiðum og sæi því glöggt hversu mikilvægt það væri að bregðast við þessari ógn. Hann sagði að fiskurinn færði sig alltaf norðar og dýpra og að lokum hlyti að koma að því að ekki væri hægt að flýja lengra.",
  "innerBlocks": []
}
Íbúafundur á Akranesi um framtíðarsýn á Breiðinni og Running Tide - Skessuhorn