
Ganga að Glym nýtur mikilla vinsælda. Hins vegar er gönguleiðin hættuleg, eins og dæmin sönnuðu í gær. Ljósm. úr safni.
Tvö óhöpp með skömmu millibili á gönguleiðinni að Glym
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Björgunarsveitir á Vesturlandi voru í tvígang kallaðar út í gær vegna fólks sem slasast hafði á gönguleiðinni að fossinum Glym í Botnsdal. Klukkan þrjú var fyrra útkallið en þá hafði kona, sem var á göngu að fossinum, hrasað og slasast á fæti. Fyrstu hópar frá björgunarsveitum voru komnir á vettvang um klukkutíma síðar og hófust handa við að hlúa að konunni sem var á ferð með nokkuð stórum gönguhópi. Í fyrstu var talið að konan væri óbrotin og beðið eftir meiri mannskap til að hefjast handa við að bera konuna niður um 500 metra að stað þar sem sexhjól gat tekið við og flutt hana áfram að sjúkrabíl til frekari aðhlynningar. Síðar kom í ljós að hún var ökklabrotin og sótti þyrla LHG hana og flutti á sjúkrahús\r\n\r\nÞegar fleiri hópar voru á leið á vettvang vegna fyrra útkallsins barst Neyðarlínu önnur tilkynning frá gönguleiðinni að Glym. Maður hafði hrasað um tíu metra niður í gilið og var talinn illa slasaður. Þá var með hæsta forgangi óskað eftir frekari aðstoða frá björgunarsveitum á Vesturlandi og einnig voru sveitir kallaðar út frá höfuðborgarsvæðinu. Nokkru síðar var björgunarsveitarmaður, sem var á leið í fyrra útkallið, kominn að manninum sem reyndist þá minna slasaður en talið var og gat fylgt honum niður að bílastæði þaðan sem hann fór á eigin vegum á slysadeild.",
"innerBlocks": []
}