
Einar Skúlason er höfundur bókarinnar.
Gönguleiðir eru fornleifar sem þarf að nota
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "UMFÍ er búið að gefa út nýja Göngubók, en þetta er 20. árið sem hún kemur út. Sem fyrr er markmiðið að hvetja fólk til þess að ganga um landið, njóta samveru með öðrum í gönguferðum og efla umhverfisvitun. Göngubókin er unnin í samstarfi við göngugarpinn Einar Skúlason og geta lesendur notað Wappið hans til að fræðast betur um einstakar gönguleiðir um allt land. Hér á Vesturlandi er fjölda gönguleiða lýst en í henni eru lýsingar á alls 272 gönguleiðum víðsvegar um landið, fyrir alla sem geta gengið, kort og ítarlegar leiðalýsingar á flestum leiðum og 32 léttar fjallgönguleiðir fyrir alla fjölskylduna. Einnig má í bókinni lesa sér til um ýmis ráð á gönguferðum.\r\n\r\n<strong>Takk amma!</strong>\r\n\r\n„Ég byrjaði að ganga með ömmu minni þegar ég var á leikskólaaldri. Amma var mikið fyrir útiveru og hún lífgaði upp á göngurnar með sögum af landinu. Ég reyni að miðla því áfram í Wappinu,“ segir Einar í viðtali sem birt er í Göngubókinni.\r\n\r\nÞar þakkar Einar ömmu sinni gönguáhugann, sem þó var ekki kominn af góðu: „Amma fékk berkla þegar hún var níu eða tíu ára og bjó í Eyjafirði. Hún og nokkrir nemendurnir í sama bekk smituðust af kennaranum. Þau voru öll flutt á berklahælið í Kristnesi og þar dó kennarinn og allir hinir nemendurnir. Amma var sú eina sem komst lífs af. Hún var á hælinu í á annað ár. En þegar hún var orðin góð reyndist hún orðin ónæm fyrir berklum og fékk vinnu á hælinu. En þarna var innprentað í hana að stunda daglega útiveru og útivist, göngur og aðra heilbrigða hreyfingu til að bæta líkamlega ástandið. Það tókst,“ segir Einar og bætir við að amma sín hafi allt sitt líf hlýtt ráðum læknanna á berklahælinu og stundað útiveru.\r\n\r\nEinari fannst gaman að hlusta á sögurnar hennar ömmu þar sem þau gengu mikið í Botnsdal í Hvalfirði, þar sem afi og amma Einars áttu bústað, og um fjörur og hlíðar skammt frá Hvalstöðinni og Olíustöðinni, þar sem afi hans vann og þau amma hans áttu annað heimili.\r\n\r\n„Við gengum mikið þarna og hún sagði mér sögur af huldufólki og álfum, benti mér á bobbana, skeljar og jaspís og talaði um umhverfið eins og það væri lifandi. Þetta reyni ég líka að gera þegar ég fer með fólki í göngur,“ segir Einar, sem byrjaði að ganga einn á eigin vegum á þessum sömu slóðum og í nágrenni við Glym.\r\n\r\n<strong>Sögur af landi í Wappinu</strong>\r\n\r\nEinar segist vinna að því að miðla sögum af landinu eins og amma hans sagði honum í Wappinu, smáforriti sem hann bjó til fyrir nokkrum árum. Wappið er gönguapp sem geymir mikið safn fjölbreyttra GPS-leiðarlýsinga um allt Ísland. Í Wappinu eru leiðarlýsingar sem notast við kortagrunn kortafyrirtækisins Samsýnar og er ráðlagt að hlaða gönguleiðinni fyrir fram inn í símann áður en haldið er af stað í göngu.\r\n\r\nÍ Wappinu eru jafnframt ljósmyndir og upplýsingar um árstíðabundinn aðgang, bílastæði, almenningssalerni og, ef ástæða er til að benda á, hættur eða önnur varúðarsjónarmið á leiðunum. Það er vel hægt að mæla með Wappinu fyrir þá sem hafa gaman af gönguferðum.\r\n\r\nVið mælum með því við göngugarpa sem vilja fræðast betur um ákveðnar slóðir og rata betur um stikaða stíga að opna Wappið og finna þá leið sem ætlunin er að ganga um.\r\n\r\n„Fjölmargar gamlar þjóðleiðir eru í Wappinu og göngur eftir góðum og gömlum leiðum snúast ekki bara um landslagið. Þær snúast líka um sögurnar og fólkið sem lifði og dó. Gömlu leiðirnar eru í raun fornleifar sem verður að nýta, annars glatast þær. Og þá er nú um að gera að nota þær til að bæta heilsu sína í leiðinni. Það er líka svo frábært að nýta stafrænu tæknina til að segja fólki frá leiðunum og varðveita þær,“ segir Einar að lokum og hvetur landsmenn til að reima á sig gönguskóna og spretta af stað.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_54579\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-54579 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/06/Gonguleidir-eru-fornleifar-sem-tharf-ad-nota_2-600x851.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"851\" /> Forsíða Göngubókarinnar 2022.[/caption]",
"innerBlocks": []
}