{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sunnudaginn 3. júlí klukkan 16 flytja Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, Ólöf Sigursveinsdóttir og Helga Bryndís Magnúsdóttir íslensk sönglög ásamt Grieg og Schubert í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir eru hluti af sumartónleikaröð í kirkjunni. Aðgangseyrir er 3.000 kr. og eru allir velkomnir.\r\n\r\n<em>Hanna Þóra Guðbrandsdóttir</em> hóf söngnám við Tónlistarskólann á Akranesi árið 1996 og lauk síðar stigsprófi frá Söngskólanum í Reykjavík 2005. Hún stundaði söngnám í Kaupmannahöfn, Osló og Berlín og hefur sótt ýmis meistaranámskeið og söngtíma. Hún hefur komið víða fram og tekið þátt í uppfærslum á þekktum óperuverkum. Hún tók þátt fyrir íslandshönd í söngkeppninni International Hans Gabor Belvedere Competiton, sem er ein stærsta keppni í heimi fyrir unga og upprennandi óperusöngvara. Hanna Þóra var valin bæjarlistamaður Akraness árið 2011.\r\n\r\n<em>Helga Bryndís Magnúsdóttir</em> lauk námi við Tónlistarskólann í Reykjavík árið 1987 sem einleikari og kennari og var Jónas Ingimundarson aðalkennari hennar þar. Framhaldsnám stundaði hún í Vínarborg og Helsinki. Eftir að námi lauk hefur hún tekið virkan þátt í tónlistarlífinu á Íslandi bæði sem einleikari og í kammermúsík ýmiskonar og þá ekki hvað minnst með söngvurum. Hún starfar um þessar mundir í Sinfóníuhljómsveit Íslands og við Tónlistarskólann í Kópavogi.\r\n\r\n<em>Ólöf Sigursveinsdóttir</em> fór í fyrsta sellótímann fimm ára í Tónskóla Sigursveins en lauk síðar námi við Tónlistarháskólann í Stuttgart. Samhliða hlaut Ólöf þjálfun í hljómsveitar- og kórstjórn við sama skóla. Ólöf hefur víða haldið einleikstónleika og tekið þátt í ýmsum tónlistarflutningi og störfum tengdum því. Hún er einn stofnenda ReykjavíkBarokk og Íslenskra strengja, kammersveitar sem hún jafnframt stjórnar. Auk þess að starfa sem sellókennari við Tónskóla Sigursveins og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar er hún listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar Berjadaga sem haldin er sumar hvert, í Ólafsfirði um Verslunarmannahelgina.",
"innerBlocks": []
}