Írskir dagar á Akranesi hefjast á morgun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á morgun, fimmtudag, hefst dagskrá bæjarhátíðarinnar Írskra daga á Akranesi. Búast má við líflegri stemningu næstu daga, en hátíðin stendur til sunnudags. Í boði á morgun eru m.a. myndlistarsýningar, grillveisla Húsasmiðjunnar og sundlaugapartý, en ýmsir viðburðir verða um allan bæ fram á sunnudag. Gera má ráð fyrir að fjölmennustu viðburðirnir verði brekkusöngur á Þyrlupallinum við Jaðarsbakka klukkan 21 á laugardagskvöldið og í kjölfarið tónlistarveislan Lopapeysan við höfnina. Sjá má ítarlega dagskrá hátíðarinnar í Skessuhorni sem kom út í dag.",
  "innerBlocks": []
}
Írskir dagar á Akranesi hefjast á morgun - Skessuhorn