Bifröst.

Góð aðsókn að Háskólanum á Bifröst næsta haust

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nýverið útskrifuðust 134 nemendur frá Háskólanum á Bifröst en það var stærsta útskrift í sögu skólans. Háskólinn stendur framarlega á sviði fjarnáms og mikil áhersla lögð á það við skólann. Nýverið lauk umsóknarferli þar sem fjöldi umsókna barst fyrir næsta skólaár. Vinsælasta grunnnám fyrir næsta haust reyndist vera BA gráða í skapandi greinum en vinsælasta meistaranámið er forysta og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun.\r\n\r\nSkessuhorn hafði samband við skólann og fékk að forvitnast um aðsóknartölur fyrir næsta haust. James Einar Becker, markaðsstjóri Háskólans á Bifröst segir að fjöldi umsókna fyrir haustið sé ánægjulegt. „Við áttum von á því að umsóknum myndi fækka þar sem lítið atvinnuleysi er og helst það oft í hendur við aðsókn í háskólanám. En þess í stað fjölgaði umsóknum lítillega milli ára. Aðsókn í framhaldsnám hélst í hendur við síðasta ár en fjölgun var í grunnnámi og Háskólagátt á milli ára,“ segir James.\r\n\r\n<strong>Viðskiptafræðin ennþá vinsæl</strong>\r\n\r\nBifröst er viðskiptaskóli en James segir almenna viðskiptafræði ennþá gríðarlega vinsæla. ,,Svo er reyndar alltaf mest í BS í viðskiptafræði en það deilist svo niður á sjö mismunandi áherslur. Þannig að erfiðara er að meta það eitt og sér. Einnig sjáum við góðan stöðugleika í BS í viðskiptalögfræði milli ára. Sú braut átti met ár síðasta vetur og náðum við að halda í við þær tölur milli ára. Háskólagáttin er einnig vinsæl en það er mikill vöxtur þar milli ára. Nú er aukningin þar frá fyrra ári sirka þrjátíu prósent.“\r\n\r\n<strong>Aukinn kraftur í endurmenntun</strong>\r\n\r\nHáskólinn á Bifröst býður upp á endurmenntunarnámskeið yfir sumartímann fyrir öll námsstig en James segir aukinn kraft vera í endurmenntun og mikið framboð á námskeiðum. Hægt er að læra íslensku, markaðsfræði, stjórnun, upplýsingatækni, skapandi skrif og fleira á endurmenntunarnámskeiðunum. ,,Umsóknarfrestur í endurmenntunarnámskeið hjá okkur verður 5. ágúst. Þar er fullt af spennandi fimm vikna einingabærum námskeiðum í boði. Aukinn kraftur og mikið framboð er í endurmenntun hjá okkur fyrir framhaldsskólastig, grunnnámsstig og framhaldsstig. Svo það er líka mjög spennandi,“ segir James.\r\n\r\n<strong>Borgarbyggð nýtir húsnæði undir flóttafólk</strong>\r\n\r\nSkólinn hefur staðið framarlega í fjarnámi og leggur í dag alla sína áherslu á fjarnám. Íbúðir sem skólinn átti á nemendagörðunum voru þess vegna settar á sölu. ,,Við erum búin að selja tæplega 30 eignir og einungis eru 14 eftir til sölu. Við munum ekki leggja aukna áherslu á staðnám í framtíðinni en skólinn leggur nú áherslu á 100% fjarnám og það húsnæði sem stendur laust er til boða fyrir nemendur á vinnuhelgum. Einnig hefur Borgarbyggð verið að nýta húsnæði á Bifröst fyrir flóttafólk frá Úkraínu,“ segir James um stöðu húsnæðismála.",
  "innerBlocks": []
}
Góð aðsókn að Háskólanum á Bifröst næsta haust - Skessuhorn