Fréttir

true

„Eins og ein stór fjölskylda“

Sigríður Lára Guðmundsdóttir er skólastjóri Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit en hún tók við starfinu árið 2017 og hefur því gegnt því í rúm fjögur ár. Blaðamaður Skessuhorns kíkti við á dögunum í Heiðarskóla og hitti þar Sigríði Láru að máli. Í Heiðarskóla eru nú 88 nemendur, 24 starfsmenn í allskyns hlutföllum og þar af 14 kennarar…Lesa meira

true

Halldóra er nýr þriðji varaforseti ASÍ

Halldóra Sigríður Sveinsdóttir, formaður Bárunnar stéttarfélags á Selfossi, var í dag kosin 3. varaforseti ASÍ á fundi miðstjórnar sambandsins. Ragnar Þór Ingólfsson hefur gegnt embætti 3. varaforseta en verður 2. varaforseti eftir að Sólveig Annu Jónsdóttir sagði af sér öllum trúnaðarstörfum fyrir ASÍ í byrjun mánaðarins. Halldóra sem er 61 árs hefur verið formaður Bárunnar…Lesa meira

true

Samfélagið þarf að viðurkenna vandamálið svo hægt sé að bregðast við

Á alþjóðlegum degi gegn einelti, 8. nóvember síðastliðinn, voru ýmsir sem drápu niður penna og skrifuðu um það alþjóðlega vandamál, og þar af leiðandi einnig þjóðfélagsmein, sem einelti er. Grípum fyrst niður í skilgreiningu á hvað einelti er. Á Vísindavefnum segir m.a: Einelti er ofbeldi þar sem einn eða fleiri ráðast að einum og beita…Lesa meira

true

Skallagrímur fór illa með ÍA í Vesturlandsslagnum

ÍA og Skallagrímur mættust í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram á Akranesi. Leikurinn byrjaði rólega en um miðjan leikhlutann var Skallagrímur búinn að finna taktinn og staðan 7:15. Skallagrímsmenn héldu áfram að bæta við forskotið, hittu vel úr sínum skotum á meðan ekkert fór ofan í hjá heimamönnum og…Lesa meira

true

Borgnesingar að skora í briddsinu

Félagar í Bridgefélagi Borgarfjarðar hittust í Logalandi á mánudagskvöldið og spiluðu aðra lotu aðaltvímennings ársins. Til leiks mættu ellefu pör og spiluðu þau barometer, 27 spil í níu umferðum. Borgnesingar komu gríðar einbeittir til leiks og léku við hvurn sinn fingur.  Besta skori náðu Rúnar Ragnarsson og Guðjón Karlsson, rúmum 60%.  Næstir þeim komu Guðmundur…Lesa meira

true

Faxatorg lokað fyrir umferð fram í miðjan desember

Lokað hefur verið fyrir alla umferð um Faxatorg á Akranesi vegna framkvæmda við lagnaskurði og tengingar. Þá stendur einnig til að gera breytingar á torginu sjálfu. Þar sem segja má að Faxatorg sé nokkurn veginn í miðju Akraneskaupstaðar hefur lokunin talsvert mikil áhrif á alla bílaumferð um bæinn auk þess sem áhrifin á ferðir strætisvagna…Lesa meira

true

Enn styrkja Lionsmenn tækjakaup á HVE

Á fundi í Lionsklúbbi Akraness í gærkvöldi var Heilbrigðisstofnun Vesturlands afhent gjöf að andvirði ríflega 3,7 milljónir króna. Gjöfinni verður að þessu sinni ráðstafað til kaupa á einum föstum vaktara á lyflækningadeild sjúkrahússins, tveimur þráðlausum vökturum og lífsmarka kerfi. Það var Valdís Heiðarsdóttir hjúkrunardeildarstjóri á lyflækningadeild sem veitti gjöfinni viðtöku. Valdís lýsti því hvernig vaktarar…Lesa meira

true

Sindri Snær genginn til liðs við Keflavík

Sindri Snær Magnússon, leikmaður ÍA, er genginn í raðir Keflavíkur og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Sindri Snær hefur leikið með Skagamönnum síðustu þrjú tímabil, lék 38 leiki og skoraði eitt mark. Sindri Snær lék með Keflvíkingum tímabilin 2014 og 2015, eftir það gekk hann til liðs við ÍBV og spilaði með…Lesa meira

true

Enn hækkar Seðlabankinn stýrivexti

Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í morgun ákvörðun sína um að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig. Þetta er í fjórða sinn í röð á skömmum tíma sem bankinn hækkar vexti. Stýrivextir voru 0,75% í maí á þessu ári en eru nú komnir upp í 2%. Fram kemur í yfirlýsingu bankans að verðbólguhorfur hafi versnað frá því í…Lesa meira

true

Hundurinn Garpur fann lifandi kind í fönn

Rjúpnaveiðimenn sem voru á veiðum í Garpsdal við Gilsfjörð í Reykhólahreppi á dögunum gengu fram á kind sem var grafin í fönn í lækjarskorningi. Ærin reyndist vera frá Gróustöðum, hafði komið fram í leitum í haust en laumast að heiman og lent í þessum ævintýrum. Þorkell Guðjónsson rjúpnaveiðimaður og félagi hans sögðu í viðtali við…Lesa meira