Fréttir

true

Þúsund tonn af salti

Falksea kom til Grundarfjarðar síðastliðinn miðvikudag til að skipa upp salti á vegum Saltkaups. Skipað var upp þúsund tonnum sem öll fóru í geymslu en þaðan er saltinu dreift eftir þörfum í vinnslur á Snæfellsnesi. Það voru Ragnar og Ásgeir ehf sem sáu um að skipa upp saltinu, en að því loknu hélt skipið til…Lesa meira

true

Arnaldur hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar

Arnaldur Indriðason rithöfundur hlaut í dag Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Verðlaunin eru veitt árlega, á degi íslenskrar tungu, þeim einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar. Sérstaka viðurkenningu dags íslenskrar tungu hlaut að…Lesa meira

true

Eldsvoðinn reyndist bilað pústkerfi

Gullhólmi SH-201 var dreginn að landi af björgunarskipi Lífsbjargar, Björginni, snemma í morgun. Í fyrstu var talið að eldsvoði hefði orðið í vélarrúmi skipsins. Áhöfnin brást rétt við og ræsti slökkvikerfi skipsins, lokaði rýmum og kallaði eftir aðstoð. Engan sakaði um borð. Að sögn lögreglunnar á Vesturlandi hefur nú komið í ljós að ekki hafi…Lesa meira

true

Karlakaffi í Vinaminni á morgun

Karlakaffi á vegum Akraneskirkju verður haldið í annað sinn í Vinaminni á Akranesi á morgun, miðvikudag, og hefst klukkan 13.30. Karlakaffið er ætlað mönnum á aldrinum 60 ára og eldri en yngri menn eru að sjálfsögðu velkomnir ef þeir vilja slást í hópinn. Gestur í karlakaffinu á morgun verður Gísli Gíslason formaður Brims Þróunarfélags á…Lesa meira

true

Fjölgun smitaðra á landsvísu aldrei meiri

Alls voru 206 einstaklingar greindir með Covid-19 á landinu í gær. Hafa aldrei fleiri greinst með veiruna á einum degi frá upphafi faraldursins fyrir tæpum tveimur árum. Tæpur helmingur þeirra sem greindust höfðu verið í sóttkví fyrir greiningu. Hér á Vesturlandi fjölgaði um tvo í einangrun milli daga, eru nú 95 í landshlutanum og 86…Lesa meira

true

Endurnýja ræsi á Snæfellsnesi

Þessa dagana er Vegagerðin að láta lengja ræsi og bæta öryggissvæði í kringum þau. Áætlað er að lengja fjögur ræsi og lagfæra fláa á Snæfellsvegi milli Búlandshöfða og Grundarfjarðar. Vegagerðin er með umsjón og verkstjórn en sex verktakar vinna verkið. Eru ökumenn beðnir að virða þær hraðatakmarkanir sem settar eru upp á meðan á framkvæmdum…Lesa meira

true

Mannbjörg þegar eldur kom upp í Gullhólma

Eldur kom upp í Gullhólma SH snemma í morgun þar sem skipið var á Breiðafirði. Skipverjar brugðust rétt við, að sögn Svans Tómassonar slökkviliðsstjóra sem mbl.is ræddi við nú fyrir skömmu. Áhöfnin brást hárrétt við aðstæðum, ræsti slökkvikerfi skipsins, lokaði rýmum og kallaði eftir aðstoð. Engan sakaði. Nærliggjandi bátum var gert viðvart og dró Björgin,…Lesa meira

true

Makalausi dagurinn markaði upphaf jólavertíðarinnar hjá Póstinum

Stóru netverslunardagarnir makalausi dagurinn (e. Singles‘ Day), svarti föstudaginn, (e. Black Friday) og stafrænn mánudagur (e. Cyber Monday) eru að festa sig rækilega í sessi hjá Íslendingum sé tekið mið af reynslu starfsmanna Íslandspósts. „Makalausi dagurinn, sem varð alþjóðlegt fyrirbæri fyrir tilstilli kínverska verslunarrisans Alibaba, er orðinn alstærsti dagur ársins í netverslun og markar hann…Lesa meira

true

Umhverfisvottun þrettán ár í röð

Sveitarfélögin á Snæfellsnesi fagna nú EarthCheck umhverfisvottun 13. árið í röð en þau fengu fyrst vottun frá vottunarsamtökunum árið 2008, fyrst allra samfélaga í Evrópu. Í tilkynningu á vef Stykkishólmsbæjar segir að með samtakamætti á Snæfellsnesi fyrir nær tveimur áratugum hafi sveitarfélögin á Snæfellsnesi hafið ferli til að fá umhverfisvottun, eitt af þeim skrefum sem…Lesa meira

true

Snæfellsstúlkur töpuðu naumlega gegn Vestra

Snæfellsstúlkur fóru í langferð um helgina til Ísafjarðar þegar þær léku gegn liði Vestra á laugardaginn í 1. deild kvenna í körfuknattleik. Fyrir leikinn var Vestri án sigurs í deildinni eftir fimm leiki á meðan Snæfell hafði unnið tvo og tapað tveimur. Snæfell byrjaði leikinn af fullum krafti, leiddi 11:25 eftir fyrsta leikhluta og mestur…Lesa meira