
Arnaldur, Lilja og Vera.
Arnaldur hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Arnaldur Indriðason rithöfundur hlaut í dag Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Verðlaunin eru veitt árlega, á degi íslenskrar tungu, þeim einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar. Sérstaka viðurkenningu dags íslenskrar tungu hlaut að þessu sinni Vera Illugadóttir, dagskrárgerðarkona á RÚV.\r\n\r\n„Íslenskan er ein af grunnstoðum íslensks samfélags. Við skilgreinum menningu okkar sem íslenska í heimi fjölmenningar. Við styrkjum stoðir íslenskrar menningar og samfélags með því að standa vörð um og treysta á íslenskuna. Hún er okkar allra. Fáir hafa í seinni tíð breitt út fagnaðarerindi tungumáls okkar líkt og verðlaunahafi ársins, sem með höfundaverki sínu hefur ekki aðeins stuðlað að meira læsi þjóðarinnar með því að færa okkur Íslendingum spennandi bækur, heldur einnig orðið til þess að ryðja fleiri íslenskum höfundum braut með því að vekja athygli heimsins á íslenskum bókmenntum. Bækur Arnaldar hafa nú verið þýddar á rúmlega 40 tungumál og þær þýðingar eru afar mikilvæg brú fyrir okkar tungumál og menningu,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.",
"innerBlocks": []
}