Björgin kemur með Gullhólma í togi til Rifshafnar. Ljósm. af.

Eldsvoðinn reyndist bilað pústkerfi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gullhólmi SH-201 var dreginn að landi af björgunarskipi Lífsbjargar, Björginni, snemma í morgun. Í fyrstu var talið að eldsvoði hefði orðið í vélarrúmi skipsins. Áhöfnin brást rétt við og ræsti slökkvikerfi skipsins, lokaði rýmum og kallaði eftir aðstoð. Engan sakaði um borð.\r\n\r\nAð sögn lögreglunnar á Vesturlandi hefur nú komið í ljós að ekki hafi kviknað eldur heldur hafði pústkerfi skipsins gefið sig með þeim afleiðingum að mikinn reyk lagði úr vélarrúmi.",
  "innerBlocks": []
}
Eldsvoðinn reyndist bilað pústkerfi - Skessuhorn