Fjölskyldan heima í stofu. Hannes S Jónsson og Bergþóra Sigurjónsdóttir ásamt þeim Jóni Gauti og Guðlaugu Gyðu. Ljósm. mm.

Samfélagið þarf að viðurkenna vandamálið svo hægt sé að bregðast við

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á alþjóðlegum degi gegn einelti, 8. nóvember síðastliðinn, voru ýmsir sem drápu niður penna og skrifuðu um það alþjóðlega vandamál, og þar af leiðandi einnig þjóðfélagsmein, sem einelti er. Grípum fyrst niður í skilgreiningu á hvað einelti er. Á Vísindavefnum segir m.a: Einelti er ofbeldi þar sem einn eða fleiri ráðast að einum og beita hann ofbeldi yfir lengri tíma. Skilgreiningar fyrir einelti eru misnákvæmar. Á Íslandi kom fram skilgreining á einelti árið 1996 sem hefur verið mikið notuð allt til dagsins í dag og hljóðar hún svo „Um einelti er að ræða þegar einhver er tekinn fyrir og píndur, andlega eða líkamlega, aftur og aftur í lengri tíma af einum eða fleiri.“ Eftir því sem rannsóknirnar aukast hafa skilgreiningarnar orðið nákvæmari og afmarka hegðunina betur. Í dag er til að mynda talað um líkamlegt, andlegt og rafrænt einelti.\r\n\r\nEinn af þeim sem tjáði sig opinskátt um einelti á alþjóðlegum degi gegn einelti var Hannes S Jónsson, tveggja barna faðir á Akranesi sem starfar sem formaður Körfuknattleikssambands Íslands. Hannes skrifaði færslu á Facebook síðu sína sem óhætt er að segja að hafi farið eins og eldur í sinu um allt landið. Þar lýsir hann því hvernig sonur hans varð fyrir grófu og endurteknu einelti í grunnskóla, hvernig kerfið hafi brugðist og hvaða áhrif þetta áralanga einelti hafði á son hans, félagsþátttöku hans og raunar á fjölskylduna alla. Færslan var skrifuð í fullu samráði við soninn, þolandann, en Jón Gautur Hannesson er í dag 17 ára, er í framhaldsskóla og æfir íþróttir. Blaðamaður Skessuhorns settist niður með fjölskyldunni á Akranesi um síðustu helgi, þeim Hannesi, Bergþóru Sigurjónsdóttur eiginkonu hans og börnum þeirra, þeim Jóni Gauti og Guðlaugu Gyðu. Þau segjast fús að ræða þessi mál opinberlega í þeim tilgangi að opna umræðuna og segjast vona heitt og innilega að samfélaginu takist í framtíðinni betur að takast á við einelti. Þau taka það fram að umræðuna kveiki þau ekki til að leita sökudólga, heldur vilja þau leggja sitt af mörkum til að samfélagið megi batna, allir fái sama rétt og tækifæri í lífinu.\r\n\r\n<em>Sjá ítarlegt viðtal við þau í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Samfélagið þarf að viðurkenna vandamálið svo hægt sé að bregðast við - Skessuhorn