Faxatorg lokað fyrir umferð fram í miðjan desember

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Lokað hefur verið fyrir alla umferð um Faxatorg á Akranesi vegna framkvæmda við lagnaskurði og tengingar. Þá stendur einnig til að gera breytingar á torginu sjálfu. Þar sem segja má að Faxatorg sé nokkurn veginn í miðju Akraneskaupstaðar hefur lokunin talsvert mikil áhrif á alla bílaumferð um bæinn auk þess sem áhrifin á ferðir strætisvagna eru nokkur.\r\n\r\nÍ tilkynningu á vef Akraneskaupstaðar kemur fram að áætlað sé að torgið verði opnað að nýju um miðjan desember með þeim fyrirvara að veður geti haft áhrif á framkvæmdir og tafið verkið. Þó verði lagt kapp á að hafa lokun torgsins eins stutta og hægt er.\r\n\r\nHjáleiðir fyrir akandi vegfarendur verða eftirfarandi :\r\n
\r\n \t
Fyrir þá sem aka austur Skagabraut er hjáleið um Jaðarsbraut upp Höfðabraut / Skarð að Garðabraut.
\r\n \t
Akandi vegfarendur á leið norður Kirkjubraut og á leið austur um vestari hluta Stillholts, eru beðnir um að fara Kalmansbraut og Esjubraut. Hægt verður að nýta Dalbraut sem hjáleið einnig, en greiðfærara verður að fara um Kalmansbraut og Esjubraut.
\r\n \t
Vegfarendur á leið niður Þjóðbraut fara í vestur um Esjubraut frá Esjutorgi eða í austur um Innnesveg.
\r\n \t
Akandi vegfarendur á leið um Garðabraut í vestur hafa hjáleið um Skarðsbraut að Innnesvegi og um Höfðabraut / Skarð um Jaðarbraut að Faxabraut og eða Skagabraut.
\r\n \t
Akandi vegfarendur á leið um Faxabraut frá hafnarsvæðinu hafa hjáleið um Jaðarsbraut um Höfðabraut / Skarð að Garðabraut eða um Jaðarsbraut að Skagabraut.
\r\n
\r\nÍ tilkynningunni segir jafnframt að gangandi og hjólandi vegfarendur eigi að komast um svæðið, en gæta verði varúðar og vera í fjarlægð frá vinnusvæðinu.\r\n\r\nÁ austurleið mun Akranesstrætó fara um Dalbraut, Esjubraut, Innnesveg og Skarðsbraut að Garðabraut. Engin stoppistöð dettur út. Færa þarf stoppistöðina við Stillholt aðeins vestar á gangstéttina, svo vagninn getið tekið beygju upp Dalbraut.\r\n\r\nGera má ráð fyrir því að breyting verði á leið Rvk. strætó um bæinn vegna lokunar á Faxatorgi. Verður það kynnt, þegar það liggur fyrir hvernig leið um bæinn breytist.",
"innerBlocks": []

Faxatorg lokað fyrir umferð fram í miðjan desember - Skessuhorn