Logaland í Borgarfirði.

Borgnesingar að skora í briddsinu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Félagar í Bridgefélagi Borgarfjarðar hittust í Logalandi á mánudagskvöldið og spiluðu aðra lotu aðaltvímennings ársins. Til leiks mættu ellefu pör og spiluðu þau barometer, 27 spil í níu umferðum. Borgnesingar komu gríðar einbeittir til leiks og léku við hvurn sinn fingur.  Besta skori náðu Rúnar Ragnarsson og Guðjón Karlsson, rúmum 60%.  Næstir þeim komu Guðmundur og Unnsteinn Arasynir með 57,6% og þriðju urðu Lárus Pétursson og Eyjólfur Kristinn Örnólfsson með 57,1%. Þegar loturnar tvær eru lagðar saman eru það þó Sveinbjörn Eyjólfsson og Guðni Hallgrímsson sem leiða, Rúnar og Guðjón koma þar skammt á eftir og svo Heiðar og Logi. Næsta mánudag verður þriðja og síðasta lota keppninnar spiluð og eru allir velkomnir.",
  "innerBlocks": []
}
Borgnesingar að skora í briddsinu - Skessuhorn