Hundurinn Garpur fann lifandi kind í fönn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Rjúpnaveiðimenn sem voru á veiðum í Garpsdal við Gilsfjörð í Reykhólahreppi á dögunum gengu fram á kind sem var grafin í fönn í lækjarskorningi. Ærin reyndist vera frá Gróustöðum, hafði komið fram í leitum í haust en laumast að heiman og lent í þessum ævintýrum. Þorkell Guðjónsson rjúpnaveiðimaður og félagi hans sögðu í viðtali við mbl.is að það hefði reyndar verið hundurinn Garpur sem hefði fundið kindina en þeir félagar komið henni til bjargar. „Við komum að gildragi sem hafði skafið yfir og það var pínulítið gat þarna en það er oft lækur undir svona, nema hundurinn, sem finnur oft rjúpur fyrir mig, fer þangað. Mér datt helst í hug að það væri refur þarna en þegar ég kíkti niður þá sá ég eitthvað hreyfast. Þetta var eins og slanga og ég hugsaði með mér hvaða furðuskepna þetta væri, eins og í ævintýri, en þá voru það hornin á kindinni. Svo horfði hún bara bara upp til mín,“ sagði Þorkell hlæjandi þegar hann rifjaði þetta upp. Honum var létt þegar í ljós kom að um hyrnda kind væri að ræða en ekki iðandi slöngu. Þorkell og félagi hans náðu að brjóta snjóinn fyrir framan kindina og toguðu í hornin á henni. Svo labbaði hún sjálf úr skaflinum.\r\n\r\nÍ kjölfarið hringdi Þorkell í bóndann sem á jörðina en þá kom í ljós að um var að ræða kind af næsta bæ sem er Gróustaðir. Guðlaug G. I. Bergsveinsdóttir, þjóðfræðingur og heimasæta á bænum, birti svo skýringar á fésbókarsíðu sinni af ævintýri kindarinnar en það kemur einnig fram á vefsíðunni reykholar.is: „ Frú 16-604, sem heitir hér eftir Fönn, var búin að skila sér í haust. Girðingarnar á Gróustöðum eru bara ekkert sérlega fjárheldar. Og hún er drulluhress, hefur ekki verið lengi þarna. Það er næstum enginn snjór í öllum firðinum, nema á svona einstaka stöðum í giljum og gömlum árfarvegum, svo þetta er einhver fáránleg tilviljun að greyið hafi endað þarna! Það er samt skandall að eina helv.. kindin okkar sem kemst í fréttir skuli vera hyrnd, því svona 90% af öllu okkar fé er kollótt!“",
  "innerBlocks": []
}
Hundurinn Garpur fann lifandi kind í fönn - Skessuhorn