{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í morgun ákvörðun sína um að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig. Þetta er í fjórða sinn í röð á skömmum tíma sem bankinn hækkar vexti. Stýrivextir voru 0,75% í maí á þessu ári en eru nú komnir upp í 2%. Fram kemur í yfirlýsingu bankans að verðbólguhorfur hafi versnað frá því í ágúst sem meðal annars megi rekja til þrálátra verðhækkana á alþjóðlegum mörkuðum, hraðari viðsnúnings í innlendum efnahagsumsvifum og hækkunar launakostnaðar. Stofnunin telur að horfur séu á því að verðbólgan haldi áfram að aukast á næstu mánuðum.",
"innerBlocks": []
}