Valdís Heiðarsdóttir hjúkrunardeildarstjóri tekur við gjafabréfi frá Carli Jóhanni Gränz forseta Lionsklúbbs Akraness. Ljósm. mm.

Enn styrkja Lionsmenn tækjakaup á HVE

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fundi í Lionsklúbbi Akraness í gærkvöldi var Heilbrigðisstofnun Vesturlands afhent gjöf að andvirði ríflega 3,7 milljónir króna. Gjöfinni verður að þessu sinni ráðstafað til kaupa á einum föstum vaktara á lyflækningadeild sjúkrahússins, tveimur þráðlausum vökturum og lífsmarka kerfi. Það var Valdís Heiðarsdóttir hjúkrunardeildarstjóri á lyflækningadeild sem veitti gjöfinni viðtöku. Valdís lýsti því hvernig vaktarar eru nýttir til að fylgjast með heilsu og líðan sjúklinga. Fram kom að vaktari sem starfsmannafélag Sementsverksmiðjunnar gaf árið 2012 er enn í notkun, en verður nú uppfærður, auk þess sem nýir vaktarar munu bæta til muna tækjakost og þjónustu á deildinni. Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri HVE þakkaði Lionsmönnum fyrir gjafmildi klúbbsins í gegnum tíðina. Fram kom hjá henni að Lionsklúbbur Akraness hefur frá árinu 2017 gefið HVE til tækjakaupa að andvirði 18,5 milljónir króna. Jóhanna Fjóla og Valdís sögðu þessar gjafir ómetanlegar fyrir starfsemi stofnunarinnar og hafa bætt öryggi og líðan sjúklinga.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_48883\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-48883 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Enn-styrkja-Lionsmenn-taekjakaup-a-HVE_2-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"400\" /> Það var þétt setið, en þó allir með grímu, þegar fundað var í matsal HVE.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Enn styrkja Lionsmenn tækjakaup á HVE - Skessuhorn