
Sigríður Lára, skólastjóri Heiðarskóla. Ljósm. vaks
„Eins og ein stór fjölskylda“
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sigríður Lára Guðmundsdóttir er skólastjóri Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit en hún tók við starfinu árið 2017 og hefur því gegnt því í rúm fjögur ár. Blaðamaður Skessuhorns kíkti við á dögunum í Heiðarskóla og hitti þar Sigríði Láru að máli. Í Heiðarskóla eru nú 88 nemendur, 24 starfsmenn í allskyns hlutföllum og þar af 14 kennarar og stjórnendur. Nemendur skólans koma úr Hvalfjarðarsveit sem nær inn í Hvalfjarðarbotn, að Borgarfjarðarbrú, að Akranesi beggja megin við Akrafjallið og inn Svínadalinn. Blaðamaður sest niður með skólastjóranum og spyr fyrst hvernig henni líki við starfið og segir Sigríður Lára að henni líki það mjög vel: „Það er mjög gefandi og þroskandi að vinna með börnum, samstarfsfólki og foreldrum í skólaumhverfi. Ég læri eitthvað nýtt á hverjum degi og engir tveir dagar eru eins. Það getur líka verið krefjandi og ýmislegt getur komið upp sem þarf að finna lausnir á. Það hefur nú yfirleitt tekist ágætlega í góðu samstarfi við nemendur, samstarfsfólk og foreldra þar sem virðing er höfð að leiðarljósi. Heilt yfir er þetta ákaflega skemmtilegt og gefandi starf.“\r\n\r\n<em>Sjá ítarlegt viðtal við skólastjórann í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}