Fréttir

true

Fantasíur – Sýningaropnun í Safnahúsinu

Myndlistarsýning Jóhönnu L. Jónsdóttur verður opnuð í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarbyggðar í dag, laugardaginn 2. október frá klukkan 13-15. Sýningin stendur til 4. nóvember og er opin alla virka daga frá klukkan 13-16. Myndirnar sem Jóhanna sýnir eru fantasíur sem fæðst hafa í huga hennar þegar hún starir á auðan strigann og umbreytir honum. Í…Lesa meira

true

Bleika slaufan 2021

Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Á síðu Krabbameinsfélagsins segir að í ár sé lögð áhersla á að vera til staðar fyrir þær konur sem greinast með krabbamein, þegar tilveran breytist snögglega og við tekur tími sem getur reynst afar erfiður. „Verum tilbúin þegar á reynir. Við hjá Krabbameinsfélaginu…Lesa meira

true

Ný stjórn mynduð hjá Snæfelli

Körfuknattleiksdeild Snæfells sendi út hjálparbeiðni á fésbókarsíðu deildarinnar fyrir tæplega hálfum mánuði þar sem kallað var eftir fólki í stjórn. Áður hafði verið leitað eftir fólki í stjórn deildarinnar þar sem núverandi stjórn ætlaði ekki að gefa kost á sér áfram. En lítið var um framboð og því boðaði körfuknattleiksdeildin til opins fundar sem fram…Lesa meira

true

Kosningakæran komin á borð Alþingis

Magnús D. Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi hefur afhent Alþingi kosningakæru þar sem hann krefst þess að Alþingi úrskurði ógilda kosningu allra framboðslista stjórnmálasamtaka í Norðvesturkjördæmi í kosningunum síðastliðna helgi. Þá krefst hann þess að uppkosning fari fram í kjördæminu við fyrsta tækifæri. „Ég trúi því og treysti að þingmenn skoði þessa kosningakæru af fullri…Lesa meira

true

Flygildi bætist í tækjaflota Skessuhorns

Nýverið festi Skessuhorn kaup á dróna, eða flygildi, til nota við fréttamyndatökur af húsum, höfnum og ýmsu fleiru. Síðan kaupin voru gerð hefur veðrið hins vegar ekki verið sérlega hagstætt til flugs léttbyggðra tækja og þar með myndatöku. Fyrsta prufumyndin er hins vegar þessi, sem tekin var úr fimmtíu metra hæð ofan við skrifstofu Skessuhorns…Lesa meira

true

„Forréttindi að fá að taka þetta að mér“

Stykkishólmsbær hóf fyrir skömmu að bjóða upp á akstursþjónustu fyrir eldri borgara, 67 ára og eldri. Þjónustan er í boði alla fimmtudaga frá kl. 13 til 15 og er gjald fyrir hverja ferð 500 krónur. Hægt er að panta akstur með því að hringja í afgreiðslu Ráðhússins og sér Bogi Thorarensen Bragason um aksturinn. Skessuhorn…Lesa meira

true

Ætlar að halda áfram á sömu línu

Skessuhorn sló í byrjun vikunnar á þráðinn til nýrra þingmanna Norðvesturkjördæmis og spurði út í úrslit kosninganna og hver væru helstu verkefni næsta kjörtímabils. Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi segir: „Ég er náttúrulega afskaplega ánægð með úrslit kosninganna. Þetta var það sem við höfðum fengið á tilfinninguna síðustu vikur baráttunnar, að fylgið væri…Lesa meira

true

Undanúrslit í Mjólkurbikarnum á morgun

Spennan er að magnast. Á morgun mætast lið Skagamanna og Keflvíkinga í undanúrslitum Mjólkurbikarsins þetta árið og hefst leikurinn á Akranesvelli klukkan tólf á hádegi. Það er mikið undir í þessum leik. Skagamenn urðu síðast bikarmeistarar árið 2003 þegar þeir lögðu FH að velli 1-0 með marki Garðars Bergmanns Gunnlaugssonar og hafa síðan þá ekki…Lesa meira

true

Ívar Orri valinn dómari ársins af leikmönnum

Leikmenn Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu völdu Skagamanninn Ívar Orra Kristjánsson sem dómara ársins árið 2021. Þetta var tilkynnt á sunnudaginn og fór verðlaunaafhendingin fram í þættinum Pepsi Max stúkan á Stöð 2 Sport sama kvöld. Þetta er í fyrsta skiptið sem Ívar Orri hlýtur þessa viðurkenningu. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Ívari Orra og…Lesa meira

true

Gott útlit með loðnukvóta fyrir næstu vertíð

Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við aflareglu strandríkja, að loðnuafli fiskveiðiárið 2021/2022 verði allt að 904.200 tonn. Ráðgjöfin verður svo endurmetin í kjölfar mælinga á stærð veiðistofnsins í byrjun næsta árs. Á síðasta fiskveiðiári veiddust 128.600 tonn af loðnu við Íslandsstrendur og fóru veiðarnar fram í janúar til mars. Þær veiðar voru með minnsta móti…Lesa meira