Ný stjórn mynduð hjá Snæfelli

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Körfuknattleiksdeild Snæfells sendi út hjálparbeiðni á fésbókarsíðu deildarinnar fyrir tæplega hálfum mánuði þar sem kallað var eftir fólki í stjórn. Áður hafði verið leitað eftir fólki í stjórn deildarinnar þar sem núverandi stjórn ætlaði ekki að gefa kost á sér áfram. En lítið var um framboð og því boðaði körfuknattleiksdeildin til opins fundar sem fram fór í gærkvöldi í bókasafni Grunnskólans í Stykkishólmi. Efni fundarins var að mynda nýja stjórn og nefndir til að sinna verkefnum deildarinnar á komandi keppnistímabili.\r\n\r\nMjög góð mæting var á fundinum í gærkvöldi, fullt hús og einnig var fólk með á fundinum á rafrænan hátt. Viðbrögðin voru til fyrirmyndar því allir fundarmenn voru sammála um að leggja hönd á plóg og halda deildinni áfram. Ný stjórn var mynduð og í framhaldi voru ýmsar nefndir stofnaðar innan deildarinnar sem hafa ákveðin verkefni í sínum höndum.\r\n\r\nNýr formaður er Hjördís Pálsdóttir og varaformenn eru Óskar Hjartarson og Óttar Sigurðsson. Gjaldkeri er Gyða Steinsdóttir og einnig var sett á laggirnar fjáröflunarnefnd sem Vera Dögg Antonsdóttir kemur til með að stýra. Snæfell spilar í 1. deild kvenna og í 2. deild karla í körfuboltanum í vetur.",
  "innerBlocks": []
}
Ný stjórn mynduð hjá Snæfelli - Skessuhorn