Ívar Orri og Harpa Jónsdóttir eiginkona hans. Ljósm. af Facebook.

Ívar Orri valinn dómari ársins af leikmönnum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Leikmenn Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu völdu Skagamanninn Ívar Orra Kristjánsson sem dómara ársins árið 2021. Þetta var tilkynnt á sunnudaginn og fór verðlaunaafhendingin fram í þættinum Pepsi Max stúkan á Stöð 2 Sport sama kvöld. Þetta er í fyrsta skiptið sem Ívar Orri hlýtur þessa viðurkenningu. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Ívari Orra og spurði hann hvaða þýðingu þessi titill hefði fyrir hann sem dómara. „Þetta er viðurkenning á mínum störfum í rauninni og það er alltaf mjög gaman að fá viðurkenningu fyrir sín störf.“ Ívar hefur síðustu tvö ár verið valinn besti dómarinn hjá fréttamiðlinum fotbolti.net en náði þó ekki þrennunni í ár því fyrir valinu varð Jóhann Ingi Jónsson. Ívar Orri var að búa sig undir för til Dyflinnar á Írlandi þegar blaðamaður heyrði í honum en þar átti hann að dæma leik í Unglingadeild UEFA milli Saint Patrick´s Athletic og FK Crvena Zvezda sem fer fram í dag, miðvikudag, og honum til aðstoðar í leiknum eru þeir Birkir Sigurðarson og Oddur Helgi Guðmundsson.\r\n\r\nÍvar Orri er fæddur í Dölunum og bjó þar til níu ára aldurs en flutti þá í Borgarnes og var þar í tæp ellefu ár. Síðan flutti hann á Skagann um tvítugt og býr þar enn og segir Ívar að hann geti líklegast núna fyrst geta talið sig sem Skagamann, en hann er giftur Hörpu Jónsdóttur og eiga þau þrjú börn. En hvenær fékk Ívar áhuga á því að verða dómari? „Það var þegar ég var að spila með Skallagrími í Borgarnesi. Ég var mikið meiddur og var svo plataður á dómaranámskeið árið 2010 og það var ekki aftur snúið. Fyrsti leikurinn minn í efstu deild var árið 2013, fyrsta heila tímabilið mitt var árið 2014 svo þetta eru orðin yfir átta ár í dómgæslunni.“ Aðspurður um hvort að það sé nokkuð mjög fjölskylduvænt að vera dómari segir Ívar að svo sé ekki og það verði að vera gott bakland hjá fjölskyldunni  til að geta tekið þátt í þessu. „Þetta er svo sem ekkert ósvipað og að vera knattspyrnumaður nema að það er minna um skipulagðar æfingar og maður púslar þessu svolítið sjálfur,“ segir Ívar Orri, dómari ársins, að lokum.",
  "innerBlocks": []
}
Ívar Orri valinn dómari ársins af leikmönnum - Skessuhorn