Flygildi bætist í tækjaflota Skessuhorns

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nýverið festi Skessuhorn kaup á dróna, eða flygildi, til nota við fréttamyndatökur af húsum, höfnum og ýmsu fleiru. Síðan kaupin voru gerð hefur veðrið hins vegar ekki verið sérlega hagstætt til flugs léttbyggðra tækja og þar með myndatöku. Fyrsta prufumyndin er hins vegar þessi, sem tekin var úr fimmtíu metra hæð ofan við skrifstofu Skessuhorns og áleiðis yfir efri byggð Akraness og Akrafjallið. Með batnandi veðri heitum við því að nota tæki þetta óspart.",
  "innerBlocks": []
}
Flygildi bætist í tækjaflota Skessuhorns - Skessuhorn