Hlín Reykdal skartgripahönnuður hannaði bleiku slaufuna í ár. Ljósm. bleikaslaufan.is

Bleika slaufan 2021

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Á síðu Krabbameinsfélagsins segir að í ár sé lögð áhersla á að vera til staðar fyrir þær konur sem greinast með krabbamein, þegar tilveran breytist snögglega og við tekur tími sem getur reynst afar erfiður. „Verum tilbúin þegar á reynir. Við hjá Krabbameinsfélaginu erum tilbúin og erum til staðar þegar á þarf að halda, hvort sem þú hefur fengið krabbamein eða ert aðstandandi. Með kaupum á Bleiku slaufunni átt þú þátt í að fækka þeim  sem fá krabbamein, fjölga þeim sem lifa af og bæta lífsgæði þeirra.“\r\n\r\nHlín Reykdal skartgripahönnuður hannaði bleiku slaufuna í ár en hana má kaupa í öllum helstu verslunum eða á bleikaslaufan.is. Föstudaginn 15. október 2021 er Bleiki dagurinn. Þá eru landsmenn hvattir til að bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning og samstöðu.",
  "innerBlocks": []
}
Bleika slaufan 2021 - Skessuhorn