{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skessuhorn sló í byrjun vikunnar á þráðinn til nýrra þingmanna Norðvesturkjördæmis og spurði út í úrslit kosninganna og hver væru helstu verkefni næsta kjörtímabils. Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi segir: „Ég er náttúrulega afskaplega ánægð með úrslit kosninganna. Þetta var það sem við höfðum fengið á tilfinninguna síðustu vikur baráttunnar, að fylgið væri að færast til okkar. Ég get ekki verið annað en mjög ánægð með þessi úrslitþ Ég held að þessi niðurstaða sýni að fólk er að kalla eftir þessum stöðugleika sem hefur verið.“\r\n\r\nSpurð fyrir hvaða málefnum hún ætli að beita sér á nýju kjörtímabili segir Halla Signý: „Ég ætla að halda áfram á sömu línu og áður. Við komum í gegn kerfisbreytingum í þjónustu við börn og þurfum að yfirfæra þær breytingar á fleiri hópa. Við þurfum áframhaldandi uppbyggingu í húsnæðismálum á landsbyggðinni, að vera með nóg af húsnæði og sveigjanleika í húsnæðismálum. Við þurfum líka að halda áfram í að byggja upp atvinnu á landsbyggðinni og að bæta samgöngur. Við þurfum að jafna raforkukostnað í dreifbýli og bæta og jafna þjónustu um allt land, eins og til dæmis heilbrigðisþjónustu.“\r\n\r\nEn hver verða fyrstu verk Höllu Signýjar á nýju kjörtímabili? „Núna, fyrsta vinnudaginn á nýju kjörtímabili, held ég að ég þurfi að bæta veðrið! Ég á að vera mætt á fund en sit hér heima, kemst ekkert og sé ekki yfir í næsta hús. Það er ekki flogið því úti er bylur og 10-20 cm snjór yfir öllu. En vetrarþjónustan er einmitt málefni sem við þurfum að standa vörð um. Það er mikilvægt þegar fólk er að fara á milli staða til vinnu eða skóla að vetrarþjónustan sé í lagi,“ segir Halla Signý Kristjánsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins.",
"innerBlocks": []
}