Fréttir

true

Krauma fékk flestar Ferðagjafirnar

Ferðagjöfin árið 2021 rann út um síðustu mánaðamót. Hægt er að sjá á svokölluðu Mælaborði ferðaþjónustunnar hversu margir Íslendingar notuðu sína 5.000 króna ferðagjöf. Alls voru tæplega 219 þúsund ferðagjafir sóttar og rúmlega 195 þúsund þeirra voru fullnýttar. Þá er hægt að sjá á mælaborðinu í hvaða landshlutum gjafirnar voru notaðar. Flestir notuðu sína gjöf…Lesa meira

true

Snæfellsstúlkur sigruðu KR í fyrsta leik

Kvennalið Snæfells byrjaði vel í 1. deild kvenna í körfubolta þennan veturinn þegar þær lögðu KR að velli í Vesturbænum síðasta laugardag með minnsta mögulega mun, 73:74. Jafnræði var nánast allan fyrsta leikhlutann í leiknum en KR leiddi við flautuna með fjögur stig, 21:17. Í öðrum leikhluta var nánast sama upp á teningnum, jafnt á…Lesa meira

true

ÍA tapaði naumlega gegn Hrunamönnum

Skagamenn ferðuðust á Flúðir á föstudagskvöldið þar sem þeir mættu liði Hrunamanna í 1. deild karla í körfuknattleik og urðu að sætta sig við naumt tap, lokatölur 106:101. Hrunamenn byrjuðu betur í leiknum en Skagamenn komust yfir 18:19 eftir sex mínútna leik og staðan 28:30 þeim í vil eftir fyrsta leikhluta. Jafnt var nánast á…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði gegn Fjölni í körfunni

Skallagrímur lék sinn fyrsta heimaleik í vetur í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið, þegar liðið mætti Fjölni úr Grafarvogi. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta og staðan í lok hans 13:16 Fjölni í vil. Sama var upp á teningnum í öðrum leikhluta, Skallagrímur var þó yfirleitt alltaf með forystuna en staðan…Lesa meira

true

Undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar fundar í dag

Undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar Alþingis kemur saman í dag til að fara yfir kjörbréfin sem landskjörstjórn gaf út fyrir helgi. Undir venjulegum kringumstæðum væri vinna nefndarinnar einföld, en vegna þess hvernig staðið var að endurtalningu og hvernig gengið var frá kjörgögnum í Norðvesturkjördæmi er staðan flóknari. Nefndin fær einnig í hendurnar kærur sem búið er að leggja…Lesa meira

true

Styrkir til atvinnu- og nýsköpunarverkefna

Úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Vesturlands var haldin á Landnámssetrinu í Borgarnesi síðastliðinn föstudag. þar voru veittir 17 styrkir úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands til atvinnu- og nýsköpunarverkefna. Uppbyggingasjóður Vesturlands hefur það hlutverk að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi og úthlutar sjóðurinn styrkjum tvisvar á ári til atvinnu- og nýsköpunarverkefna og einu sinni á ári til menningarverkefna. Alls…Lesa meira

true

Opna dósamóttökuna aftur

Dósamóttakan í Borgarnesi verður opnuð á ný í hádeginu í dag, mánudaginn 4. október. Móttakan er staðsett við Borgarbraut 55, þar sem áður var Bifreiðaþjónusta Harðar. Um er að ræða tímabundna staðsetningu út þetta ár. Opið verður frá kl. 12:30-15:00 á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum.Lesa meira

true

Íbúafundur á Reykhólum í kvöld

Boðað hefur verið til íbúafundar í kvöld, mánudaginn 4. október, á Reykhólum þar sem ræða á um sameiningakosti sveitarfélagsins. „Reykhólahreppur vinnur að greiningu sameiningarvalkosta. Markmið verkefnisins er að greina styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri Reykhólahrepps ef til sameiningar sveitarfélagsins kemur. Í því felst jafnframt að greina sameiningarvalkosti,“ segir í frétt á vef sveitarfélagsins. Verður þetta…Lesa meira

true

Glæsilegur árangur hjá Kristínu á HM í klassískum kraftlyftingum

Kristín Þórhallsdóttir gerði sér lítið fyrir og nældi í bronsverðlaun á HM í klassískum kraftlyftingum í Halmstad í dag. Kristín, sem æfir með Kraftlyftingafélagi Akraness, var að keppa á sínu fyrsta alþjóðlega móti og er óhætt að segja að hún hafi heldur betur sýnt að þar eigi hún heima. Hún lyfti 217,5 kg í hnébeygju…Lesa meira

true

Skagamenn komnir í úrslit Mjólkurbikarsins

Skagamenn tryggðu sér sæti í úrslitaleik Mjólkurbikarsins með öruggum 2:0 sigri á Keflvíkingum á Akranesvelli í dag og mæta Víkingum, sem sigruðu Vestra frá Ísafirði í hinum undanúrslitaleiknum. Úrslitaleikurinn sjálfur fer fram á Laugardalsvellinum laugardaginn 16. október nk. Er þetta í fyrsta skipti í 18 ár sem Skagamenn komast í úrslit bikarkeppninnar.. Það var rafmögnuð…Lesa meira