Gunnlaugur Jónsson leiddi lið Skagamanna til sigurs í bikarnum árið 2003. Ljósm kfia

Skagamenn komnir í úrslit Mjólkurbikarsins

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skagamenn tryggðu sér sæti í úrslitaleik Mjólkurbikarsins með öruggum 2:0 sigri á Keflvíkingum á Akranesvelli í dag og mæta Víkingum, sem sigruðu Vestra frá Ísafirði í hinum undanúrslitaleiknum. Úrslitaleikurinn sjálfur fer fram á Laugardalsvellinum laugardaginn 16. október nk. Er þetta í fyrsta skipti í 18 ár sem Skagamenn komast í úrslit bikarkeppninnar..\r\n\r\nÞað var rafmögnuð stemning fyrir leik. Stuðningsmenn Skagaliðsins létu vel í sér heyra, en einnig mætti fjöldi stuðningsmanna Keflavíkurliðsins á völlinn.\r\n\r\nSkagamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og strax á 6. mínútu á átti Gísli Laxdal Unnarsson fyrirgjöf sem datt ofan á þverslá Keflavíkurmarksins. Með þessu gaf Gísli tóninn um það sem koma skyldi frá honum. Því aðeins fjórum mínútum síðar kom hann Skagamönnum yfir í leiknum. Þá óð Ísak Snær Þorvaldsson upp völlinn og renndi boltanum á Gísla sem skoraði með þrumuskoti á nærstöngina.  Eftir tuttugu og sex mínútna leik voru Skagamenn komnir í 2:0. Þá skallaði Steinar Þorsteinsson inn á Gísla sem komst einn í gegn og skoraði með föstu skoti á milli fóta Sindra í markinu.\r\n\r\nSkagamenn fengu síðan tvö hörkufæri í kjölfarið til þess að klára leikinn. Fyrst átti Ísak Snær lúmskt skot sem stefndi í fjærhornið en Sindri Kristinn Ólafsson í marki Keflvíkinga varði vel, síðan varði hann enn betur þegar hann varði með tilþrifum þrumuskot frá Guðmundi Tyrfingssyni sem stefndi í bláhornið. En Árni Marinó Einarsson þurfti þó í uppbótartíma að verja hörkuskot frá Marley Blair. Staðan því vænleg fyrir Skagamenn 2:0 í hálfleik.\r\n\r\nSíðari hálfleikurinn var heldur rólegri en sá fyrri. Skagamenn héldu vel skipulaginu í leik sínum og hleyptu gestunum ekkert inn í leikinn. Á 71. mínútu fékk Davíð Snær Jóhannsson í liði Keflavíkur sitt annað gula spjald og þar með rautt og léku gestirnir því einum færri það sem eftir lifði leiks. Það voru helst langskot frá Keflvíkingum sem sköpuðu reyndar litla hættu. Jóhannes Karl þjálfari Skagamanna gerði nokkrar breytingar á liði sínu í hálfleiknum  og notaði alla fimm varamenn sína og sigldi sigrinum af öryggi í höfn.\r\n\r\nHeilt yfir átti allt Skagaliðið góðan dag. En þeir Gísli Laxdal Unnarsson, Ísak Snær Þorvaldsson áttu mjög góðan leik og sömuleiðis Óttar Bjarni Guðmundsson Alex Davey í vörninni.\r\n\r\nJóhannes Karl þjálfari hældi öllu liðinu fyrir frábæra frammistöðu eftir leikinn, en hældi þó sérstaklega Gísla Laxdal og Guðmundi Tyrfingssyni sem báðir sýndu mjög góða frammistöðu. Auk þess miðvörðunum Óttari Bjarna og Alex Davey. Jóhannes Karl sagði að hann ætlaði að mæta með lið sitt í bikarúrslitaleikinn til þess að vinna bikarinn.",
  "innerBlocks": []
}
Skagamenn komnir í úrslit Mjólkurbikarsins - Skessuhorn