Íbúafundur á Reykhólum í kvöld

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Boðað hefur verið til íbúafundar í kvöld, mánudaginn 4. október, á Reykhólum þar sem ræða á um sameiningakosti sveitarfélagsins. „Reykhólahreppur vinnur að greiningu sameiningarvalkosta. Markmið verkefnisins er að greina styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri Reykhólahrepps ef til sameiningar sveitarfélagsins kemur. Í því felst jafnframt að greina sameiningarvalkosti,“ segir í frétt á vef sveitarfélagsins. Verður þetta verkefni kynnt fyrir íbúum og þeir spurðir hvort Reykhólahreppur eigi að hefja sameiningaviðræður og þá hvaða valkostir ættu að vera í forgangi.\r\n\r\nFundurinn hefst kl 20:00 í matsal Reykhólaskóla auk þess sem honum verður streymt á Facebook síðu Reykhólahrepps.",
  "innerBlocks": []
}
Íbúafundur á Reykhólum í kvöld - Skessuhorn