Alþingishúsið við Austurvöll. Ljósm. Stjórnarráðið/ Hari.

Undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar fundar í dag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar Alþingis kemur saman í dag til að fara yfir kjörbréfin sem landskjörstjórn gaf út fyrir helgi. Undir venjulegum kringumstæðum væri vinna nefndarinnar einföld, en vegna þess hvernig staðið var að endurtalningu og hvernig gengið var frá kjörgögnum í Norðvesturkjördæmi er staðan flóknari. Nefndin fær einnig í hendurnar kærur sem búið er að leggja fram í málinu, en Magnús D. Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi, hefur lagt fram kæru til kjörbréfanefndar. Þá hafa Guðmundur Gunnarsson, oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi, og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, sagst ætla að leggja fram kæru í dag. Kærufrestur almennings er fjórar vikur frá kosningum svo enn geta bæst við fleiri kærur.\r\n\r\nBirgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í undirbúningsnefnd, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að uppkosning sé ýtrasta úrræðið og að fyrst þurfi að skoða alla aðra möguleika.",
  "innerBlocks": []
}
Undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar fundar í dag - Skessuhorn