Barátta í leik Snæfells og KR. Ljósm. karfan.is

Snæfellsstúlkur sigruðu KR í fyrsta leik

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Kvennalið Snæfells byrjaði vel í 1. deild kvenna í körfubolta þennan veturinn þegar þær lögðu KR að velli í Vesturbænum síðasta laugardag með minnsta mögulega mun, 73:74. Jafnræði var nánast allan fyrsta leikhlutann í leiknum en KR leiddi við flautuna með fjögur stig, 21:17. Í öðrum leikhluta var nánast sama upp á teningnum, jafnt á öllum tölum og KR með þriggja stiga forskot í hálfleik, 40:37.\r\n\r\nBaráttan hélt áfram fram og til baka í þriðja leikhluta en undir lok hans komst Snæfell yfir og var með fjögurra stiga forskot, 53:56. Spennan var enn til staðar í þeim fjórða en um miðjan leikhlutann náði Snæfell sex stiga forystu og lokamínúturnar voru æsispennandi. KR-ingurinn Hulda Ósk Bergsteinsdóttir minnkaði muninn í aðeins eitt stig með tveimur vítaskotum þegar rúmar fjörutíu sekúndur voru eftir á klukkunni en þær misstu síðan boltann tvívegis á lokamínútunni á meðan Snæfell klikkaði á fjórum vítaskotum undir lok leiksins. Lokatölur 73:74 og frábær byrjun hjá Snæfelli í fyrsta leik vetrarins.\r\n\r\nStigahæstar í liði Snæfells voru þær Sianni Martin sem var með 23 stig, Vaka Þorsteinsdóttir og Preslava Koleva voru með 12 stig hvor og Rebekka Rán Karlsdóttir var með 10 stig. Í liði KR með Borgnesinginn Hörð Unnsteinsson sem þjálfara var fyrrnefnd Hulda Ósk langstigahæst með 30 stig og Fanney Ragnarsdóttir var með 11 stig. Næsti leikur Snæfells er gegn liði Þórs frá Akureyri og verður fyrir norðan fimmtudaginn 7. október og hefst klukkan 18.",
  "innerBlocks": []
}
Snæfellsstúlkur sigruðu KR í fyrsta leik - Skessuhorn