
Ljósm. úr safni/ jho.
ÍA tapaði naumlega gegn Hrunamönnum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skagamenn ferðuðust á Flúðir á föstudagskvöldið þar sem þeir mættu liði Hrunamanna í 1. deild karla í körfuknattleik og urðu að sætta sig við naumt tap, lokatölur 106:101. Hrunamenn byrjuðu betur í leiknum en Skagamenn komust yfir 18:19 eftir sex mínútna leik og staðan 28:30 þeim í vil eftir fyrsta leikhluta. Jafnt var nánast á öllum tölum í öðrum leikhluta og staðan 54:50 fyrir Hrunamönnum þegar leikmenn gengu til hálfleiks.\r\n\r\nHrunamenn náðu fljótlega níu stiga forystu í þriðja leikhluta en Skagamenn komu sterkir til baka og náðu að minnka muninn í fjögur stig þegar honum lauk og staðan 81:77. Mikil spenna var í fjórða leikhluta en undir lokin náðu Hrunamenn að hrista Skagamennina af sér og sigldu sigrinum í höfn, 106:101.\r\n\r\nStigahæstir í liði ÍA voru þeir Cristopher Clover sem var með 26 stig, Nestor Elijah Saa var með 24 stig og Davíð Alexander Magnússon með 20 stig. Yfirburðamaður í liði Hrunamanna var Kent David Hanson sem henti í 43 stig og 20 fráköst, Clayton Ladine var með 19 stig og Karlo Lebo með 13 stig. Næsti leikur ÍA er gegn Selfossi næsta föstudag í Íþróttahúsinu á Vesturgötu og hefst klukkan 19.15.",
"innerBlocks": []
}