Ljósm. úr safni

Krauma fékk flestar Ferðagjafirnar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ferðagjöfin árið 2021 rann út um síðustu mánaðamót. Hægt er að sjá á svokölluðu Mælaborði ferðaþjónustunnar hversu margir Íslendingar notuðu sína 5.000 króna ferðagjöf. Alls voru tæplega 219 þúsund ferðagjafir sóttar og rúmlega 195 þúsund þeirra voru fullnýttar. Þá er hægt að sjá á mælaborðinu í hvaða landshlutum gjafirnar voru notaðar. Flestir notuðu sína gjöf á höfuðborgarsvæðinu en þangað fóru alls 548 milljónir króna. 226 milljónir voru notaðar hjá landsdekkjandi fyrirtækjum. Á Vesturlandi var notuð um 31 milljón króna af Ferðagjöfinni. Krauma í Borgarfirði var þar vinsælasti áfangastaðurinn og fóru alls um fimm milljónir króna þangað. Næst á eftir var Sker Restaurant í Ólafsvík og Galito á Akranes, en báðir staðir fengu um þrjár milljónir króna í gegnum Ferðagjöfina. Hraunsnef í Norðurárdal og Húsafell fengu um tvær milljónir hvor.",
  "innerBlocks": []
}
Krauma fékk flestar Ferðagjafirnar - Skessuhorn