Skallagrímur tapaði gegn Fjölni í körfunni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skallagrímur lék sinn fyrsta heimaleik í vetur í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið, þegar liðið mætti Fjölni úr Grafarvogi. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta og staðan í lok hans 13:16 Fjölni í vil. Sama var upp á teningnum í öðrum leikhluta, Skallagrímur var þó yfirleitt alltaf með forystuna en staðan jöfn í hálfleik 38:38.\r\n\r\nÍ þriðja leikhluta bættu Fjölnismenn í og náðu 14 stiga forystu eftir fimm mínútna leik og héldu henni nokkurn veginn til loka leikhlutans og staðan þá 52:65. Í síðasta leikhlutanum gekk lítið hjá heimamönnum, um tíma var munurinn kominn í 19 stig og erfiðlega gekk hjá Sköllunum að saxa niður forskotið. Lokatölur leiksins 77:88 og annað tap Skallagríms í röð í deildinni í vetur.\r\n\r\nStigahæstir í liði Skallagríms voru Nebojsa Knezevic með 22 stig, Marinó Þór Pálmason og Almar Örn Björnsson voru með 14 stig hvor og Davíð Guðmundsson var með 13 stig. Hjá Fjölni var Daníel Ágúst Halldórsson með 18 stig, Viktor Máni Steffensen með 17 stig og Dwayne Ross Foreman Jr. með 16 stig. Næsti leikur Skallagríms í deildinni er gegn liði Hamars úr Hveragerði og er leikurinn syðra  föstudaginn næsta 8. október klukkan 19.15.",
  "innerBlocks": []
}
Skallagrímur tapaði gegn Fjölni í körfunni - Skessuhorn