Kristín Þórhallsdóttir vann til bronsverðlauna á HM í klassískum kraftlyftingum. Ljósm. Kraftlyftingasamband Íslands

Glæsilegur árangur hjá Kristínu á HM í klassískum kraftlyftingum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Kristín Þórhallsdóttir gerði sér lítið fyrir og nældi í bronsverðlaun á HM í klassískum kraftlyftingum í Halmstad í dag. Kristín, sem æfir með Kraftlyftingafélagi Akraness, var að keppa á sínu fyrsta alþjóðlega móti og er óhætt að segja að hún hafi heldur betur sýnt að þar eigi hún heima. Hún lyfti 217,5 kg í hnébeygju og setti þar með nýtt Íslandsmet og jafnaði Evrópumetið, sem hafði verið sett einni mínútu áður en sú sem lyfti fyrst fær metið skráð á sitt nafn en því miður ekki Kristín. Í bekkpressu lyfti Kristín 112,5 kg sem er nýtt Íslandsmet og í réttstöðulyftu tók hún 222,5 kg sem einnig er nýtt Íslandsmet. Glæsilegur árangur hjá Kristínu og persónuleg bæting um 12,5 kg.",
  "innerBlocks": []
}
Glæsilegur árangur hjá Kristínu á HM í klassískum kraftlyftingum - Skessuhorn