
Bogi Thorarensen Bragason við bílinn í fyrsta skutlinu. Ljósm. sá.
„Forréttindi að fá að taka þetta að mér“
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Stykkishólmsbær hóf fyrir skömmu að bjóða upp á akstursþjónustu fyrir eldri borgara, 67 ára og eldri. Þjónustan er í boði alla fimmtudaga frá kl. 13 til 15 og er gjald fyrir hverja ferð 500 krónur. Hægt er að panta akstur með því að hringja í afgreiðslu Ráðhússins og sér Bogi Thorarensen Bragason um aksturinn. Skessuhorn heyrði í Boga og spurði hann hvernig það hafi komið til að hann tók þetta verkefni að sér. Bogi segir að það hafi verið hringt í hann frá bænum fyrir skemmstu og hann beðinn um að sjá um aksturinn: „Ég var sko aldeilis til í það og mér fannst það vera forréttindi að taka þetta að mér. Það vantaði ákveðinn aðila til að hjálpa eldri borgurum í bænum að ferðast um, kíkja í verslanir, til læknis og þess háttar.“\r\n\r\nBogi hefur verið öryrki frá árinu 2016 og hefur í rólegheitum verið að ná sér eftir tvær aðgerðir á ökkla sem hann fór í fyrir nokkrum árum síðan. Bogi segir að þjónustan fari hægt af stað enda er þetta nýbyrjað og hvetur hann fólk til að hafa samband og nýta sér þessa þjónustu: „Ég fór í mína fyrstu ferð þarsíðasta fimmtudag og þar skutlaði ég konu í Bónus og í smá stúss. Hún var það ánægð að hún pantaði mig vikulega nokkrar ferðir fram í tímann. Ég get tekið alls fjóra í einu í bílinn ef því er að skipta og upplagt fyrir eldra fólk að geta kíkt saman í bæinn upp á félagsskapinn.“\r\n\r\nBogi segir að lokum að það þýði ekkert annað en að vera bjartsýnn á að það verði tekið vel í þessa þjónustu eldri borgara í Stykkishólmsbæ. Hann hlakki mikið til að keyra eldri borgara út um allar trissur, hann lofi skemmtilegum félagsskap og þægilegum bíltúr.",
"innerBlocks": []
}