
Á loðnuveiðum. Ljósm. úr safni/ Friðþjófur Helgason.
Gott útlit með loðnukvóta fyrir næstu vertíð
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við aflareglu strandríkja, að loðnuafli fiskveiðiárið 2021/2022 verði allt að 904.200 tonn. Ráðgjöfin verður svo endurmetin í kjölfar mælinga á stærð veiðistofnsins í byrjun næsta árs. Á síðasta fiskveiðiári veiddust 128.600 tonn af loðnu við Íslandsstrendur og fóru veiðarnar fram í janúar til mars. Þær veiðar voru með minnsta móti í sögulegu samhengi ef undan eru skilin tvö ár án veiða. Ungloðnuvísitala sem mældist nú í haust er sú þriðja hæsta frá upphafi. Sérfræðingar hjá Hafrannsóknastofnun telja ótvírætt að loðnustofninn sé nú að taka hraustlega við sér.",
"innerBlocks": []
}