Kosningakæran komin á borð Alþingis

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Magnús D. Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi hefur afhent Alþingi kosningakæru þar sem hann krefst þess að Alþingi úrskurði ógilda kosningu allra framboðslista stjórnmálasamtaka í Norðvesturkjördæmi í kosningunum síðastliðna helgi. Þá krefst hann þess að uppkosning fari fram í kjördæminu við fyrsta tækifæri. „Ég trúi því og treysti að þingmenn skoði þessa kosningakæru af fullri sanngirni og alvöru,“ segir Magnús.\r\n\r\n„Uppspretta valdsins í okkar samfélagi er í þingkosningum. Löggjafarvaldið velur síðan hverjir fara með framkvæmdarvald sem síðan skipar þá sem fara með dómsvald. Heilindi kerfisins í heild eru undir í þessu máli. Allar málsástæður kærunnar, hver um sig og eins allar saman, fela í sér ógildingarannmarka sem eru til þess fallnir að draga úr trúverðugleika talningarinnar, sama hvort litið er til fyrri eða síðari talningarinnar, starfa yfirkjörstjórnar í heild og þar með trúverðugleika kosninganna sem fram fóru í kjördæminu,“ segir Magnús. Þá segir hann einu leiðina til að leysa þennan vanda vera að skipa nýja og hæfa yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi og endurtaka kosningarnar „þannig að hafið sé yfir allan vafa að farið sé eftir lögum og reglum. Það er sanngjörn og réttmæt krafa okkar frambjóðenda og ekki síst kjósenda í kjördæminu.“",
  "innerBlocks": []
}
Kosningakæran komin á borð Alþingis - Skessuhorn