
Gunnlaugur Jónsson leiddi lið Skagamanna til sigurs í bikarnum árið 2003. Ljósm kfia
Undanúrslit í Mjólkurbikarnum á morgun
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Spennan er að magnast. Á morgun mætast lið Skagamanna og Keflvíkinga í undanúrslitum Mjólkurbikarsins þetta árið og hefst leikurinn á Akranesvelli klukkan tólf á hádegi. Það er mikið undir í þessum leik. Skagamenn urðu síðast bikarmeistarar árið 2003 þegar þeir lögðu FH að velli 1-0 með marki Garðars Bergmanns Gunnlaugssonar og hafa síðan þá ekki komist lengra en í 8-liða úrslit. Keflvíkingar hins vegar urðu síðast bikarmeistarar árið 2006 þegar þeir unnu KR 2-0 en léku síðast til úrslita árið 2014 þegar þeir töpuðu þá fyrir KR, 2-1.\r\n\r\nÍ hinum undanúrslitaleiknum mætast lið Vestra frá Ísafirði og lið Víkings Reykjavíkur á Meistaravöllum í Vesturbænum og hefst leikurinn klukkan 14.30. Ekki eru aðstæður til knattspyrnuiðkunar á Ísafirði og því var leikurinn færður á KR völlinn. Þjálfarar liðanna eru Skagamennirnir Jón Þór Hauksson og Arnar Bergmann Gunnlaugsson. Víkingur er ríkjandi bikarmeistari frá árinu 2019 en Mjólkurbikarinn var blásinn af í fyrra áður en undanúrslitaleikirnir fóru fram vegna kórónufaraldursins.\r\n\r\nÞað er því ljóst að það er spennandi laugardagur fram undan og eru knattspyrnuáhugamenn hvattir til að mæta á leikina og styðja við sín lið. Úrslitaleikurinn fer svo fram laugardaginn 16. október á Laugardalsvelli og hefst klukkan 14. Báðir leikirnir á morgun verða sýndir í læstri dagskrá á Stöð 2 Sport.",
"innerBlocks": []
}