Fréttir

true

Milljarðaframkvæmdir fram undan í Snæfellsbæ

Fjölbreyttar framkvæmdir og fjárfestingar fyrir um 2,5 milljarða króna eru fyrirhugaðar í Snæfellsbæ á næstu fjórum árum. Áformin voru kynnt á opnum íbúafundi bæjarstjórnar í Félagsheimilinu Klifi sl. þriðjudag. Meðal stærstu verkefna eru uppbygging íbúða fyrir eldri borgara, framkvæmdir við hafnir sveitarfélagsins og endurbætur á þjónustu og innviðum. Stærsta einstaka fjárfestingin er á vegum Hafnarsjóðs…Lesa meira

true

Föt fá nýtt líf á skiptimarkaði í Grundarfirði

Grundarfjarðarbær stendur fyrir hringrásarverkefninu Skilað og skipt í Samkomuhúsinu í Grundarfirði dagana 18.–22. nóvember. Þar gefst íbúum kostur á að koma með fatnað sem þeir eru hættir að nota, gefa honum nýtt líf og finna sér jafnvel nýjar flíkur í staðinn. Sérstök áhersla er lögð á að fólk komi með íþróttafatnað og skó sem geta…Lesa meira

true

Leita að nýjum rekstraraðila fyrir Vínlandssetur í Búðardal

Dalabyggð leitar að nýjum rekstraraðila fyrir Vínlandssetur í Leifsbúð við Búðarbraut 1 í Búðardal. Í húsinu er sögusýning um landafundi norrænna manna á Grænlandi og í Ameríku, auk aðstöðu fyrir veitingarekstur, verslun eða aðra starfsemi. Á efri hæð hússins er fullbúin sögusýning með hljóðleiðsögn sem er í eigu Dalabyggðar og fylgir rekstrinum. Neðri hæðin býður…Lesa meira

true

Vígsla nýrra altarisklæða í Borgarneskirkju

Næstkomandi sunnudag klukkan 18 verður messa og athöfn í Borgarneskirkju þar sem ný altarisklæði verða vígð. Katrín Jóhannesdóttir, Borgnesingur, textílkennari, útsaumslistakona með meiru, hefur saumað klæðin. Við athöfnina segir hún frá altarisklæðunum. Klæðin eru endurgerð af upphaflegu altarisklæðunum í kirkjunni.  Séra María Guðrún Ágústsdóttir prófastur predikar við messuna. Steinunn Þorvaldsdóttir og Anna Þórhildur flytja aríur…Lesa meira

true

Frítt í sund og líkamsrækt fyrir krabbameinssjúka

Íbúar Borgarbyggðar, sem glíma við krabbamein, fá nú aukinn stuðning til hreyfingar og endurhæfingar. Borgarbyggð og Krabbameinsfélag Borgarfjarðar hafa undirritað samstarfssamning sem gerir fólki í krabbameinsmeðferð eða endurhæfingu kleift að nýta sundlaugar og íþróttamiðstöðvar sveitarfélagsins án endurgjalds. Markmiðið er að auðvelda fólki að stunda hreyfingu á meðan á meðferð og endurhæfingu stendur og stuðla þannig…Lesa meira

true

Útköllum slökkviliða fjölgar – gróðureldar óvenju margir

Útköllum slökkviliða landsins fjölgaði um 8% á fyrstu níu mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Alls voru skráð 2.118 útköll, samanborið við 1.958 í fyrra. Fjölgunin kemur í kjölfar tveggja ára þar sem útköllum hafði fækkað. Sérstaka athygli vekur mikil fjölgun gróðurelda, en útköll vegna þeirra hafa ekki verið fleiri á þessu tímabili…Lesa meira

true

Vilja blása nýju lífi í sögufrægt íþróttahús á Akranesi

Akraneskaupstaður leitar nú eftir tilboðum í húseignina við Vesturgötu 62, sem á sér merka sögu í íþrótta- og skólastarfi bæjarins. Húsið er illa farið og þarfnast umfangsmikilla endurbóta, en vonir standa til að nýir eigendur geti komið því í gagnið á ný og skapað þar aðstöðu fyrir fjölbreytta starfsemi sem nýtist bæjarbúum. Útboð er auglýst…Lesa meira

true

Landsbankamót í sundi haldið í Bjarnalaug

Í gær fór Landsbankamót Sundfélags Akraness fram í Bjarnalaug. Þar ríkti mikið fjör og frábær stemning. Þátttakendur stóðu sig með stakri prýði en alls tók 41 krakki á aldrinum 7–12 ára þátt. Keppt var í baksund, bringusundi og skriðsundi. Að Landsbankamóti loknu var verðlaunaafhending og happdrætti fyrir sundkrakkana í hátíðarsalnum á Jaðarsbökkum. „Sundfélag Akranes þakkar…Lesa meira

true

Áform um fornbílasafn og upplifunarmiðstöð í auglýsingu

Áform eru um uppbyggingu upplifunarmiðstöðvar í landi Fellsenda í Hvalfjarðarsveit, þar sem fornbílasafn verður í aðalhlutverki. Einnig er gert ráð fyrir veitingarekstri, gistiaðstöðu og fjölbreyttri afþreyingu á um 16 hektara svæði. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 12. nóvember að auglýsa tillögur að breytingu á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar. Samhliða er gert…Lesa meira

true

Kalla eftir sjónarmiðum landeigenda um framtíð Stykkishólms

Unnið er að nýju aðalskipulagi Sveitarfélagsins Stykkishólms þar sem mótuð verður framtíðarsýn um þróun byggðar, atvinnulífs, samgangna og landnýtingar í sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að íbúar og landeigendur hafi tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en lengra verður haldið. Fyrr á árinu var haldinn íbúafundur og efnt til vefkannana meðal íbúa…Lesa meira