Barist við gróðureld í Slögu við rætur Akrafjalls sl. vor. Ljósm. úr safni Skessuhorns/ÓHK

Útköllum slökkviliða fjölgar – gróðureldar óvenju margir

Útköllum slökkviliða landsins fjölgaði um 8% á fyrstu níu mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Alls voru skráð 2.118 útköll, samanborið við 1.958 í fyrra. Fjölgunin kemur í kjölfar tveggja ára þar sem útköllum hafði fækkað. Sérstaka athygli vekur mikil fjölgun gróðurelda, en útköll vegna þeirra hafa ekki verið fleiri á þessu tímabili frá því skráningar hófust árið 2016.