
Gunnar Þór Gunnarsson frumkvöðull og eigandi Fellsenda kynnti hugmyndir sínar um verkefnið á fundi í ágúst. Ljósm. Skessuhorn / óhk
Áform um fornbílasafn og upplifunarmiðstöð í auglýsingu
Áform eru um uppbyggingu upplifunarmiðstöðvar í landi Fellsenda í Hvalfjarðarsveit, þar sem fornbílasafn verður í aðalhlutverki. Einnig er gert ráð fyrir veitingarekstri, gistiaðstöðu og fjölbreyttri afþreyingu á um 16 hektara svæði. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 12. nóvember að auglýsa tillögur að breytingu á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar. Samhliða er gert ráð fyrir göngu-, reið- og hjólaleið milli Eiðisvatns og Akrafjalls. Svæðið er í dag skilgreint sem landbúnaðarland og er jafnframt innan varúðar- og þynningarsvæðis stóriðjuveranna á Grundartanga.