
Katrín situr og saumar.
Vígsla nýrra altarisklæða í Borgarneskirkju
Næstkomandi sunnudag klukkan 18 verður messa og athöfn í Borgarneskirkju þar sem ný altarisklæði verða vígð. Katrín Jóhannesdóttir, Borgnesingur, textílkennari, útsaumslistakona með meiru, hefur saumað klæðin. Við athöfnina segir hún frá altarisklæðunum. Klæðin eru endurgerð af upphaflegu altarisklæðunum í kirkjunni. Séra María Guðrún Ágústsdóttir prófastur predikar við messuna. Steinunn Þorvaldsdóttir og Anna Þórhildur flytja aríur og ljóð en séra Heiðrún Helga Bjarnadóttir leiðir stundina og vígir klæðin með bæn.