
Vesturgata 62 – Gamla fimleikahúsið. Texti: ÓHK. Ljósm. mm
Vilja blása nýju lífi í sögufrægt íþróttahús á Akranesi
Akraneskaupstaður leitar nú eftir tilboðum í húseignina við Vesturgötu 62, sem á sér merka sögu í íþrótta- og skólastarfi bæjarins. Húsið er illa farið og þarfnast umfangsmikilla endurbóta, en vonir standa til að nýir eigendur geti komið því í gagnið á ný og skapað þar aðstöðu fyrir fjölbreytta starfsemi sem nýtist bæjarbúum. Útboð er auglýst í Skessuhorni í dag.