Landsbankamót í sundi haldið í Bjarnalaug

Í gær fór Landsbankamót Sundfélags Akraness fram í Bjarnalaug. Þar ríkti mikið fjör og frábær stemning. Þátttakendur stóðu sig með stakri prýði en alls tók 41 krakki á aldrinum 7–12 ára þátt. Keppt var í baksund, bringusundi og skriðsundi.