Föt fá nýtt líf á skiptimarkaði í Grundarfirði

Grundarfjarðarbær stendur fyrir hringrásarverkefninu Skilað og skipt í Samkomuhúsinu í Grundarfirði dagana 18.–22. nóvember. Þar gefst íbúum kostur á að koma með fatnað sem þeir eru hættir að nota, gefa honum nýtt líf og finna sér jafnvel nýjar flíkur í staðinn. Sérstök áhersla er lögð á að fólk komi með íþróttafatnað og skó sem geta nýst öðrum. Óskilamunafjallið verður jafnframt á sínum stað og eru foreldrar hvattir til að líta þar við og leita að týndum flíkum barna sinna. Um helgina verður afgangurinn af óskilamununum síðan færður á skiptimarkaðinn. Tekið er við fatnaði og skóm en ekki bókum eða skrautmunum.