
Horft til vesturs yfir Bjarnarhafnarfjall sem þarna hvílir undir þokuhatti. Ljósm. Stykkishólmur
Kalla eftir sjónarmiðum landeigenda um framtíð Stykkishólms
Unnið er að nýju aðalskipulagi Sveitarfélagsins Stykkishólms þar sem mótuð verður framtíðarsýn um þróun byggðar, atvinnulífs, samgangna og landnýtingar í sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að íbúar og landeigendur hafi tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en lengra verður haldið.