
Á myndinni er verið að vinna við hellulagningu við sundlaugina á Kleppjárnsreykjum. Ljósm. úr safni Skessuhorns
Frítt í sund og líkamsrækt fyrir krabbameinssjúka
Íbúar Borgarbyggðar, sem glíma við krabbamein, fá nú aukinn stuðning til hreyfingar og endurhæfingar. Borgarbyggð og Krabbameinsfélag Borgarfjarðar hafa undirritað samstarfssamning sem gerir fólki í krabbameinsmeðferð eða endurhæfingu kleift að nýta sundlaugar og íþróttamiðstöðvar sveitarfélagsins án endurgjalds. Markmiðið er að auðvelda fólki að stunda hreyfingu á meðan á meðferð og endurhæfingu stendur og stuðla þannig að bættri heilsu, vellíðan og lífsgæðum. Samkvæmt samningnum fá félagsmenn Krabbameinsfélags Borgarfjarðar, sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu og uppfylla skilyrðin, frítt árskort. Félagið annast úthlutun kortanna sem gilda í tólf mánuði í senn.