
Leita að nýjum rekstraraðila fyrir Vínlandssetur í Búðardal
Dalabyggð leitar að nýjum rekstraraðila fyrir Vínlandssetur í Leifsbúð við Búðarbraut 1 í Búðardal. Í húsinu er sögusýning um landafundi norrænna manna á Grænlandi og í Ameríku, auk aðstöðu fyrir veitingarekstur, verslun eða aðra starfsemi. Á efri hæð hússins er fullbúin sögusýning með hljóðleiðsögn sem er í eigu Dalabyggðar og fylgir rekstrinum. Neðri hæðin býður upp á ýmsa möguleika, meðal annars veitingasölu, en þar er eldhússaðstaða. Nýr rekstraraðili þarf þó að útbúa hæðina í samræmi við fyrirhugaða starfsemi, enda er meirihluti búnaðar og húsgagna í eigu fráfarandi rekstraraðila. Hann hefur lýst sig reiðubúinn til að selja hluta búnaðarins.